Fanney flúði flóð: Setti kanínurnar í ferðatösku og skaut snákana

Fanney Rut Dishaw varð að flýja í flýti þegar heim­ili hennar varð fyrir flóði.

Fanney flúði flóð: Setti kanínurnar í ferðatösku og skaut snákana
Allt á kafi Heimili þeirra Fann­eyjar Rutar og Randy stendur við Brazos-fljótið sem flæddi yfir bakka sína.

Sex hafa farist í flóðum í suð­aust­ur­hluta Texas í Banda­ríkj­unum en á svæð­inu býr að minnsta kosti einn Íslend­ingur, hin 24 ára gamla Fanney Rut Dishaw.

Hún býr við Brazos-fljótið en það fór að flæða yfir bakka sína á laug­ar­dag­inn og varð Fanney Rut að flýja ásamt eig­in­manni sínum og heim­il­is­dýrum á litlum ára­bát. Þegar Stundin náði tali af henni var hún stödd í vina­húsi sem var á þurru landi. Hún seg­ist hafa gert sitt besta í að bjarga því mik­il­væg­asta en fjöl­skyldan hafi þurft að skilja eftir 26 hænsni. Það stytti upp á sunnu­dag­inn en í gær fór að rigna aftur.

Dró bátinn áfram
Dró bát­inn áfram Fanney Rut og heim­il­is­dýrin voru um borð í bátnum á meðan Randy dró hann áfram.

Rigndi eins og hellt væri úr fötu

„Það er búið að rigna frekar mikið síð­ustu daga og því­líkar þrumur og eld­ingar sem hafa fylgt með því. Þetta byrj­aði um hádegi á föstu­dag­inn og þá fórum við Randy að ánni og tókum rölt með­fram bakk­anum. Þá var vatnið svona hálfan metra frá bakk­anum sem okkur fannst algjör bilun enda kemur það mjög sjaldan fyrir að fljótið nái svona langt upp að bakk­anum,“ segir Fanney Rut en á þessum tíma­punkti var henni ekki farið að lit­ast á blik­una.

„Hún segir að allur sinn tími hafi farið í það að gera fjöl­skyld­una til­búna til að yfir­gefa heim­ilið.“

„Það rigndi enda­laust, eins og hellt væri úr fötu, og í marga klukku­tíma. Við stóðum síðan úti á palli og sáum fljótið koma yfir bakk­ann hjá nágrönnum okkar. Randy sagði þá við mig að við þyrftum að fara heim og pakka niður, reyna að fara með eins mikið af eigum okkar og verð­mætum í gamla húsið sem er hérna á jörð­inni en það er á stultum og því hærra en húsið okkar nýja. Þá setti ég einnig í eina af ferða­tösk­unum það sem við þyrftum að taka með okkur ef ske kynni að við yrðum að yfir­gefa heim­ilið okkar,“ segir Fanney Rut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóð

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár