Metár í fjölda hælisumsókna: 36 hælisleitendur komu til landsins í gær

Útlend­inga­stofnun er í miklum vand­ræðum með hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur hér á landi og því dvelja nú tæp­lega 200 þeirra á hót­elum og gisti­heim­ilum víðs­vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í nágrenni þess. Yfir 600 hæl­is­leit­endur bíða örlaga sinna á Íslandi og þeim fjölgar í hverri viku.

Metár í fjölda hælisumsókna: 36 hælisleitendur komu til landsins í gær
Fjölgar í viku hverri Hæl­is­leit­endum fjölgar í viku hverri hér á landi en í gær komu 36 nýir hæl­is­leit­endur til lands­ins.

Gríð­ar­leg fjölgun hæl­is­um­sókna hér á landi hefur komið flatt upp á Útlend­inga­stofnun sem hefur verið í miklum vand­ræðum með hús­næði síð­ustu vik­urnar. Í gær komu 36 nýir hæl­is­leit­endur til lands­ins en þar af voru fjórar fjöl­skyldur sem töldu 31 ein­stak­ling sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Þessi aukn­ing hefur valdið því að Útlend­inga­stofnun hefur þurft að grípa til þess ráðs að hýsa fólk á hót­elum og gisti­heim­ilum víðs­vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í nágrenni þess.

Þeir hæl­is­leit­endur sem komu til lands­ins í gær fengu úthlutuð her­bergi á gisti­heim­il­inu Airport Inn á Ásbrú í Reykja­nesbæ. Auk þeirra fengu átta aðrir hæl­is­leit­endur gist­ingu á sama stað og því gista nú 44 hæl­is­leit­endur á umræddu gisti­heim­ili.

Samkvæmt tölum frá Útlend­inga­stofnun var heild­ar­fjöldi hæl­is­um­sókna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 561 sem gerir árið að metári í þessu sam­bandi en sam­kvæmt sömu upp­lýs­ingum er helm­ingur þeirra umsókna frá íbúum Vestur-Balkanskag­ans, t.d. frá Albaníu og Makedóníu. Rúmlega 600 ein­stak­lingar njóta þjón­ustu í hæl­is­kerf­inu um þessar mundir en þar af eru um 190 manns í þjón­ustu hjá Reykja­vík­ur­borg, Hafn­ar­fjarð­arbæ og Reykja­nesbæ á grund­velli þjón­ustu­samn­inga við Útlend­inga­stofnun. Stofnun sjálf veitir rúm­lega 400 hæl­is­leit­endum þjón­ustu en af þeim dvelja, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, tæp­lega 200 á hót­elum og gisti­heim­ilum.

Líkt og fram hefur komið í fréttum þá vinnur Útlend­inga­stofnun að því að opna gisti­skýli fyrir hæl­is­leit­endur á Krók­hálsi, þar sem Lög­reglu­skóli rík­is­ins var áður til húsa. Með opnun þess er ætlun Útlend­inga­stofn­unar að draga úr þeim fjölda sem dvelur á gisti­heim­ilum og hót­elum en þá seg­ist stofn­unin jafn­framt vinna að fleiri úrræðum.

„Gisti­skýlið á Krók­hálsi verður fyrsti mót­töku­staður fyrir hæl­is­leit­endur sem hingað koma án maka og barna. Gert er ráð fyrir að úrræðið muni rúma allt að 75 manns. Þjónusta í gisti­skýl­inu verður með öðru sniði en í öðrum búsetu­úr­ræðum á vegum Útlend­inga­stofn­unar að því leyti að þeir sem þar dvelja verða einnig í fullu fæði,“ segir á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár