Reiðibylgja í kjölfar kæru og nafnbirtingar

DV nafn­greindi kærendur í Hlíða­mál­inu fyrir slysni og baðst afsök­unar. Nauðg­un­ar­kæra manns á hendur ungri konu hefur vakið hörð við­brögð og Sóley Tóm­as­dóttir for­seti borg­ar­stjórnar kallar Vilhjálm H. Vil­hjálms­son „fyr­ir­lit­legan lág­kúru­lög­fræð­ing“.

Reiðibylgja í kjölfar kæru og nafnbirtingar

DV.is birti í dag nöfn og kenni­tölur manns og konu sem kært hafa hvort annað fyrir nauðgun í íbúð Hlíða­hverf­inu í Reykja­vík.

Ágúst Borgþór Sverr­is­son, blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina, segir í sam­tali við Stundina að um mis­tök hafi verið að ræða og gerðar hafi verið breyt­ingar á umræddri grein. „Þetta eru bara mis­tök og ég er búinn að taka þetta út. Þetta er bara bömmer og mjög vont,“ segir hann.

Mistökin fólust í því að kæra manns­ins á hendur kon­unni var birt í heild án þess að per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar væru fjar­lægðar. Í kæru­skjal­inu mátti einnig sjá nöfn þriggja ann­arra manna sem sagðir eru geta gefið lög­reglu skýrslu „um hátt­semi kon­unnar“. Nöfnin og kenni­töl­urnar voru inni í um það bil korter áður en frétt­inni var breytt.

Neðst í frétt DV er nú að finna afsök­un­ar­beiðni frá rit­stjóra DV.is. „Þegar fréttin birt­ist fyrst fylgdi henni, fyrir mis­tök, kæru­skjalið sem um ræðir. DV biður hlut­eig­andi inni­lega afsök­unar á þessum mis­tökum,“ segir þar.

Nokkur umræða hefur spunn­ist um málið á sam­fé­lags­miðlum og hafa mis­tökin meðal ann­ars verið sett í sam­hengi við atvik sem vakti athygli fyrir þremur árum þegar Pressan, sem nú er í eigu sama fyr­ir­tækis og DV, birti mynd af stúlku sem kært hafði Egil Gillzenegger Ein­ars­son fyrir kyn­ferð­is­brot. Myndin var fjar­lægð og baðst þáver­andi rit­stjóri Pressunnar, afsök­unar á birt­ing­unni.

Hörð viðbrögð við kæru

Mikil reiði hefur blossað upp eftir að Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, verj­andi tveggja manna sem kærðir voru fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tveimur konum í Hlíðunum, lagði fram kæru fyrir hönd ann­ars manns­ins gegn annarri kon­unni. „Í dag sá ég glitta í afkima feðra­veld­is­ins sem mér datt ekki í hug að væri til. Fyr­ir­lit­legi lág­kúru­lög­fræð­ingur,“ skrifar Sóley Tóm­as­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­vík­ur­borgar á Twitter. „Afsakið meðan ég æli,“ skrifar Sveinn Arnarson, blaða­maður á Frétta­blað­inu, á Facebook.

Á umræðu­vett­vang­inum Beauty Tips tjáir fjöldi kvenna sig um málið og hneyksl­ast á fram­gangi lög­manns­ins. „Ég held að þetta snú­ist bara um taktík, að reyna að þagga kon­urnar niður,“ segir ein þeirra sem leggja orð í belg. „Af hverju kærði hann þær fyrst fyrir rangar sak­ar­giftir en ekki kon­una strax fyrir nauðgun? Hefði það ekki átt að vera í for­gangi?“ spyr önnur. 

#þúertekkiein

Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir, sem tals­vert hefur látið að sér kveða í jafn­rétt­isum­ræð­unni und­an­farin ár, birtir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stelp­urnar á Facebook-síðu sinni og í Beauty Tips-hópnum.

„Í dag tal­aði ég við konur sem eru mjög trig­ger­aðar eftir nýjasta við­bjóðs­lega útspil lög­manns­ins sem ég vil ekki nefna. Okkur langar til að koma stuðn­ingi á fram­færi við þolend­urna í þessu máli. Við vitum ekki hverjar þær eru en við viljum að þær viti að við erum að hugsa til þeirra. Og ég býð öllum í Beauty tips að kvitta hérna undir ef þið viljið taka undir þessi skila­boð til þeirra,“ skrifar Hildur og hund­ruð kvenna taka undir. 

„Ef þetta væru mínar dætur væri ég svo óskap­lega þakk­lát dóm­stóli göt­unnar fyrir öskrin og deil­ingar, ást­ina og bar­átt­una,“ segir einn þeirra Facebook-not­enda sem deilir færslu Hildar. „Ég held að ALLIR ættu að setja sig í spor þess­arra stelpna og hugsa, hvað ef þetta væri mín dóttir, systir, bróðir, maður eða kona!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár