Fimm mál sem voru stöðvuð

Á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að ljúka lagði rík­is­stjórnin fram fjölda umdeildra mála sem ekki náðu fram að ganga, einkum vegna þrýst­ings frá almenn­ingi og stjórn­ar­and­stöð­unni.

Fimm mál sem voru stöðvuð

Á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að ljúka lagði rík­is­stjórnin fram fjölda umdeildra mála sem ekki náðu fram að ganga, einkum vegna þrýst­ings frá almenn­ingi og stjórn­ar­and­stöð­unni. Hér verður stiklað á stóru yfir þau helstu:

Sjúklingaskatturinn 

Í fyrsta fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var gert ráð fyrir að tekin væru upp legu­gjöld á spít­ölum og sjúk­lingar látnir greiða 1200 krónur á hvernig legu­dag. Með þessu stóð til að afla rík­is­sjóði um 300 millj­óna tekna yfir fjár­laga­árið en í sömu fjár­lögum var lagt til að komu­gjöld heilsu­gæslu­stöðva yrðu hækkuð.

Bent var á að legu­gjöld á sjúkra­húsum myndu leggj­ast þyngst á öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega. Rík­is­stjórnin féll frá áformunum eftir að þau höfðu sætt harðri gagn­rýni. Um svipað leyti féllst rík­is­stjórnin loks á þá kröfu stjórn­ar­and­stöð­unnar að atvinnu­lausir fengju des­em­ber­upp­bót árið 2013 eins og tíðkast hafði árin á undan.

Náttúrupassinn

Í lok árs 2014 kynnti Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, frum­varp til laga um svo­kall­aðan nátt­úrupassa þar sem lagt var til að allir lands­menn og ferða­menn, 18 ára og eldri, yrðu látnir greiða 1.500 krónur fyrir skír­teini til að mega fara inn á ferða­manna­staði í eigu og umsjón ríkis og sveit­ar­fé­laga. Málið vakti strax mikla og nei­kvæða athygli, einkum eftir að greint var frá því að ef frum­varpið yrði að lögum þyrftu Íslend­ingar að kaupa nátt­úrupassa til að mega ganga um þjóð­garð­inn á Þing­völlum sem hefur verið frið­lýstur helgi­staður allra Íslend­inga frá árinu 1930. Ragn­heiður Elín gaf loks hug­myndir um nátt­úrupass­ann upp á bát­inn eft­ir­mik­inn þrýst­ing.

LÍN-frumvarpið

Með frum­varpi Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, til nýrra heild­ar­laga um náms­lán og náms­styrki var lagt til að tekju­teng­ing afborg­ana af náms­lánum yrði afnumin, vextir allt að þre­fald­aðir og náms­styrkur veittur öllum nem­endum, óháð efna­hag og þörf. Háskóli Íslands og fjöldi umsagn­ar­að­ila var­aði við því að frum­varpið yrði óbreytt að lögum. Færðu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar rök fyrir því að með gild­is­töku frum­varps­ins yrði grafið undan lífs­kjörum stúd­enta – einkum dokt­or­snema, ein­stæðra for­eldra og tekju­lágra – en jafn­framt stuðlað að ójöfn­uði og lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu. Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands og fleiri hreyf­ingar hvöttu til þess að frum­varpið yrði keyrt í gegnum þingið á síð­ustu dögum þess. Sú varð ekki raunin vegna ein­dreg­innar and­stöðu stjórn­ar­and­stöð­unnar. Lýsti Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, frum­varp­inu sem „Thatcherisma“ og „krist­al­tæru dæmi um ótrú­lega vont póli­tískt hjarta­lag“.

Stórauknar virkjanaframkvæmdir

Stöðugur ágrein­ingur hefur ríkt um mál­efni ramma­á­ætl­unar og flokkun virkj­ana­kosta á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili milli þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar og meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar Alþingis. Þar hefur Jón Gunn­ars­son, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verið í far­ar­broddi þeirra sem hafa viljað ganga lengra og gefa grænt ljós á miklu fleiri virkj­ana­fram­kvæmdir en verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur talið óhætt að ráð­ast í. Stjórn­ar­and­staðan hefur brugð­ist harka­lega við ítrek­uðum til­raunum stjórn­ar­liða til að fara út fyrir ramma verk­efna­stjórnar ramma­á­ætl­unar. Fyrir vikið hafa Jón Gunn­ars­son og meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar ekki haft erindi sem erf­iði.

Makrílfrumvarpið

Uppi varð fótur og fit þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um að afla­heim­ildum í mak­ríl, með sölu­verð­mæti upp á rúma 70 millj­arða, yrði úthlutað stórum útgerð­ar­fé­lögum til sex ára á grund­velli veiði­reynslu. Um leið var lagt til að ekki yrði hægt að breyta úthlut­un­inni nema með sex ára fyr­ir­vara og þannig hendur næstu rík­is­stjórna bundnar. Stundin greindi frá því í for­síðu­út­tekt að ef frum­varpið yrði að lögum fengju tíu eig­endur útgerða 35 millj­arða mak­ríl­kvíta úthlut­aðan. Frum­varpið féll væg­ast sagt í grýttan jarð­veg en 51 þús­und manns undir áskorun til for­seta Ís­lands um að vísa því í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Á end­anum dag­aði frum­varpið uppi í atvinnu­vega­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár