Lyf flæða inn í íslenska undirheima

Meira fram­boð er af lyf­seð­ils­skyldum lyfjum en ólög­legum fíkni­efnum í íslenskum und­ir­heimum í dag. Mest er úrvalið af róandi og mor­fín­skyldum lyfjum en eitt þeirra, Fentanyl, er sagt hafa kostað ungan mann lífið um síð­ustu helgi. Stundin ræddi við sölu­mann slíkra lyfja.

Lyf flæða inn í íslenska undirheima
Ungt fólk í stór­hættu Mikið úrval er af lyfjum á svörtum mark­aði hér á landi. Mynd: Shutterstock / Sviðsett mynd

Ungur maður á þrí­tugs­aldri fannst lát­inn heima hjá sér aðfara­nótt sunnu­dags­ins 21. ágúst síð­ast­lið­inn en dauðs­fallið er rakið til mis­notk­unar á verkja­lyf­inu Fentanyl. Félagi manns­ins sem lést var einnig hætt kom­inn á skemmti­stað í mið­borg Reykja­víkur vegna sama lyfs en hann fór í hjarta­stopp. Sá komst til lífs aftur og er líðan hans eftir atvikum. Lög­reglan rann­sakar bæði málin og hafa for­svars­menn hennar óskað eftir fundi með Land­lækn­is­emb­ætt­inu þar sem reynt verður að stemma stigu við mis­notkun á efnum sem þessum.

Verkja­lyfið Fentanyl er eitt af fleiri tugum lyfja sem fáan­leg eru á svörtum mark­aði hér á landi en fram­boð af slíkjum lyfjum hefur stór­auk­ist að und­an­förnu. Lyfin eru mark­aðs­sett með hjálp sam­fé­lags­miðla á borð við Facebook en þar fer einnig sala þeirra flestra fram. Sölurnar eiga sér stað í lok­uðum hópum á Facebook sem hafa það eitt að mark­miði að aug­lýsa lyf­seð­ils­skyld lyf og ólög­leg fíkni­efni til sölu. Sölu­menn­irnir, líkt og þær teg­undir lyfja sem seld eru, hlaupa á tugum. Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við einn af þeim sölu­mönnum sem aug­lýsa lyf til sölu á Facebook.

Við­kom­andi vildi ekki koma fram undir nafni en var til­bú­inn til þess að gefa blaða­manni smá inn­sýn inn í sölu á þessum lyfjum, hvaða lyf eru til sölu, hvað þau kosta og hvernig þeim er útvegað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár