Lögreglan óskar eftir myndefni alla leið upp í Borgarfjörð

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óskar eftir myndefni vegna leit­ar­innar að Birnu Brjáns­dóttur.

Lögreglan óskar eftir myndefni alla leið upp í Borgarfjörð
Birna Brjáns­dóttir Ekkert hefur spurst til Birnu frá því á laug­ar­dags­morgun. Tveir menn eru í gæslu­varð­haldi grun­aðir um að hafa átt þátt í hvarfi hennar. Mynd: Facebook / Lögreglan

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu biður öku­menn bif­reiða sem búa yfir mynda­véla­bún­aði um að yfir­fara myndefnið í þeirri von að það geti gagn­ast lög­reglu við leit hennar að Birnu Brjáns­dóttur, sem hefur verið saknað frá því á laug­ar­dags­morgun. Eingöngu er átt við myndefni sem tekið var upp laug­ar­dags­morg­un­inn 14. jan­úar milli klukkan 7 og 11.30 og sýnir rauðan smá­bíl af gerð­inni Kia Rio. Athygli vekur að leitað er eftir myndefni frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess, það er á Reykja­nesi, á Suð­ur­landi að Selfossi og á Vest­ur­landi upp í Borg­ar­fjörð.

„Vitað er að margir öku­menn, ekki síst atvinnu­bíl­stjórar, búa yfir slíkum  mynda­véla­bún­aði og eru hinir sömu beðnir um að yfir­fara myndefnið með fram­an­greint í huga,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu frá lög­reglu. 

Tilkynning lögreglu í heild:

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu beinir þeim vin­sam­legu til­mælum til öku­manna bif­reiða, sem búa yfir mynda­véla­bún­aði að þeir yfir­fari myndefnið í þeirri von að það geti gagn­ast lög­reglu við leit hennar að Birnu Brjáns­dóttur. Hér er ein­vörð­ungu og aðeins átt við myndefni sem tekið var upp laug­ar­dags­morg­un­inn 14. jan­úar frá kl. 7 – 11.30. Jafn­framt er tekið fram að ein­ungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tíma­bili sem kann að sýna rauðan smá­bíl af gerð­inni Kia Rio. Leitað er eftir myndefni frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess, raunar frá stórum hluta suð­vest­an­lands, þ.e. á Reykja­nesi, Suð­ur­landi (að Selfossi) og Vest­ur­landi (upp í Borg­ar­fjörð). Vitað er að margir öku­menn, ekki síst atvinnu­bíl­stjórar, búa yfir slíkum  mynda­véla­bún­aði og eru hinir sömu beðnir um að yfir­fara myndefnið með fram­an­greint í huga.

Þeir sem búa yfir slíkum mynda­véla­bún­aði og vilja koma myndefni til lög­reglu eru beðnir að athuga:

  • Að búið sé að fara yfir myndefnið og kanna hvort að þar sé bif­reið sem getur átt við lýs­ing­una.
  • Að tíma­setn­ing á atviki komi fram.

Það að fara yfir mynd­bönd er mjög tíma­frekt og til að nýta mann­afla lög­reglu sem best biðjum við fólk að gæta að þessu.

Upp­lýs­ingum má koma á fram­færi í síma lög­reglu 444 1000, í einka­skila­boðum á fés­bók­ar­síðu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða í tölvu­pósti á net­fangið abending@lrh.is

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár