Lofar Sigmund Davíð og segir Vilhjálm í vandræðum með sjálfsmyndina

Þor­steini Sæmunds­syni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, blöskrar umræða síð­ustu daga um eig­inir eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Tortola og segir ógæfu­fólk ráð­ast á for­sæt­is­ráð­herra vegna þess að hann hafi kjark og dug sem því skorti. Um leið talar hann um „hjá­rænu­legan Sjálf­stæð­is­þing­mann sem er í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína“.

Lofar Sigmund Davíð og segir Vilhjálm í vandræðum með sjálfsmyndina

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, fer mik­inn í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi í morgun. Í grein­inni sem ber tit­il­inn „Af ógæfu­fólki í íslenskri póli­tík“ kemur Þor­steinn flokks­bróður sínum, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra, til varnar og segir að með umræðu und­an­far­inna daga um eignir eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Bresku Jóm­frú­areyj­unum væri skrif­aður „nýr kafli í lág­kúru­um­ræðu.“

Talar um „hjárænulegan Sjálfstæðisþingmann“ 

Í síð­ustu viku birti Anna Sig­ur­laug yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hún sagð­ist eiga erlent félag sem hún not­aði til að halda utan um fjöl­skyldu­arf­inn. Síðar kom í ljós að félagið var á Tortola og hefði gert kröfur upp á hálfan millj­arð í slitabú föllnu bank­anna.

Málið var rætt á Alþingi og nú segir Þor­steinn að sér blöskri, um leið og hann skýtur föstum skotum að þeim sem hafa látið til sín taka í umræð­unni og gagn­rýnt leynd­ina í kringum reikn­ing­inn. Talar hann meðal ann­ars um „hjá­rænu­legan Sjálf­stæð­is­þing­mann sem er í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína“.

Hjá­rænu­legi Sjálf­stæð­is­þing­mað­ur­inn er ekki nafn­greindur í grein­inni, en þarna skýtur Þor­steinn að Vil­hjálmi Bjarna­syni, sem sagði í Viku­lok­unum um helg­ina að hann hefði óbeit á Fram­sókn­ar­flokknum. Umræðan um eignir eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Tortola hefðu komið illa við sam­starfs­flokk­inn í rík­is­stjórn­inni. Þetta væri óþægi­legt mál og ekki til þess fallið að auka traust hans á Fram­sókn­ar­flokknum. Rétt hefði verið að Sig­mundur Davíð hefði veitt upp­lýs­ingar um þetta félag eig­in­konu sinnar.

„Svona til upp­lýs­ingar þá þekki ég nú engan fram­sókn­ar­mann sem ber traust til Vil­hjálms.“

Sagðist hafa óbeit á Framsóknarflokknum
Sagðist hafa óbeit á Fram­sókn­ar­flokknum Vil­hjálmur Bjarna­son gagn­rýndi for­sæt­is­ráð­herra harka­lega í Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina, þar sem hann sagði að Sig­mundur Davíð hefði átt að upp­lýsa um eignir eig­in­kon­unnar á Tortola og málið væri ekki til þess fallið að auka traust hans á Fram­sókn­ar­flokknum.

Aðstoðarmaðurinn fyrri til 

„Þetta er mjög óþægi­legt fyrir sam­starfs­flokk sem er Sjálf­stæð­is­flokkur að standa and­spænis þessu […] Við lögðum í þann leið­angur að kaupa ákveðin gögn sem vörð­uðu svona félög. Þá hlýtur þetta að vera rann­sakað eins og önnur mál. Síðan hitt, það er talið að um árás á til­tekna konu sé að ræða. Eftir þeim upp­lýs­ingum sem ég hef þá var for­sæt­is­ráð­herra aðili að félag­inu þegar tjónið varð. Þannig að það eru ein­ungis eft­ir­stöðv­arnar sem eru skráðar á hana og hjóna­band er nú sam­eig­in­legt fjár­fé­lag,“ sagði Vil­hjálmur.

Orð Vil­hjálms féllu ekki í góðan jarð­veg á meðal fram­sókn­ar­manna og í kjöl­farið hjólaði Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í Vilhjálm:

„Finnst nú eig­in­lega pínu fyndið að í hvert skipti sem Villi gagn­rýnir Framsókn þá er því slegið upp. Svona til upp­lýs­ingar þá þekki ég nú engan fram­sókn­ar­mann sem ber traust til Vil­hjálms.“

„Ófræg­ing­ar­menn­irnir þola ekki að for­sæt­is­ráð­herra á alla kosti sem þá skortir.“ 

Segir Sigmund eflast í hverri raun

Þor­steinn lét sér ekki nægja að veit­ast að þeim sem hafa gagn­rýnt for­sæt­is­ráð­herra, svo sem Vilhjálm og Björn Val Gíslason, þing­mann Vinstri grænna, heldur lof­aði hann einnig for­sæt­is­ráð­herra. 

„Ófræg­ing­ar­menn­irnir þola ekki að for­sæt­is­ráð­herra á alla kosti sem þá skortir,“ skrif­aði hann og sagði ástæð­una fyrir því að „ógæfu­fólk ham­ast á for­sæt­is­ráð­herra hvern dag“ væri að hann hefði fram­sýni, kjark og dug sem það skorti. En það skipti engu, árás­irnar væru auð­vitað án árang­urs því „nið­ur­rifið og hæl­bitin efla Sigmund Davíð í hverri raun“.

Hann sagði hins vegar tíð­indi „að Sjálf­stæð­is­maður láti vinstrið siga sér eins og rakka vegna ein­hverrar minni­mátt­ar­kenndar.“

Grein Þor­steins má lesa í heild sinni á vef Vísis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár