Lilja sendir Frökkum samúðarkveðjur: „Biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda“

Hátt í 100 manns hafa látið lífið vegna árás­ar­innar í Nice.

Lilja sendir Frökkum samúðarkveðjur: „Biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda“

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sendi í dag sam­úð­ar­kveðju til Jean-Marc Ayrault, utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, vegna árás­ar­innar í Nice þar sem minnst 84 lét­ust og yfir 100 slös­uð­ust, þar af 18 lífs­hættu­lega. Árás­armað­ur­inn, Mohamed Lahouaiej Bouhlel, var skot­inn til bana af lög­reglu, en hann var 31 árs gam­all Nice-búi ætt­aður frá Túnis. 


„Það var skelfi­legt að fá fregnir af fjölda óbreyttra borg­ara sem lét lífið við hátíð­ar­höld á þjóð­há­tíð­ar­degi Frakk­lands í Nice í gær. Þessi hrylli­legu voða­verk beindust að frönsku þjóð­inni og á sama tíma einnig að þeim gildum sem við öll höldum í heiðri - frelsi, jafn­rétti og bræðra­lagi,“ segir í sam­úð­ar­kveðj­unni frá Lilju. „Ég færi þér og frönsku þjóð­inni mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. Við hugsum til og biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda.“


Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi út frétta­til­kynn­ingu á tólfta tím­anum þar sem því er komið á fram­færi við Íslend­inga í Nice að Rauði kross­inn veitir sál­rænan stuðn­ing vegna atburð­anna. Hjálp­ar­sími Rauða kross­ins er 1717 og svara þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar sím­tölum. Ef hringt er erlendis frá er núm­erið +3545801710.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár