Líf mitt í 5 réttum

Val­gerður Matth­í­as­dóttir sjón­varps­kona deilir hér minn­ingum um mat. Hún segir frá þeim fimm réttum sem hún tengir mest við og útskýrir af hverju.

Líf mitt í 5 réttum

1. Sigin grásleppa

Ég er alin upp af kenn­urum og móður sem var bæði kenn­ari og skóla­stjórn­andi í fullu starfi, sex barna móðir og mjög virk stjórn­mála­kona sem tók meðal ann­ars þátt í stofnun Kvenna­list­ans og kjara­bar­áttu kenn­ara. En hún var einnig mjög list­ræn og það segir í raun allt sem segja þarf um það matar­æði sem ég var alin upp við. Skynsemi, tíma­þröng, ein­fald­leiki en á sama tíma ótrú­lega mikil frum­leg­heit og bragð­gæði á heims­mæli­kvarða. Hún var ein­stak­lega lunkin við að henda í dýr­indis rétti þrátt fyrir að vera alltaf í fullu starfi og með allan krakka­sk­ar­ann. Við mamma áttum okkar sér­stöku stundir þegar hún keypti signa grá­sleppu og sauð örstutt ásamt kart­öflum og smjöri, en sigin grá­sleppa hefur verið einn af mínum upp­á­halds réttum síðan. Þessi réttur minnir mig líka á grá­slepp­urnar sem grá­sleppukarl­arnir veiddu út frá Ægisíðu og svo sauð mamma líka oft rauð­maga sem mér fannst algjört sæl­gæti. Hún var mik­ill Vest­ur­bæ­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár