Lék jólasvein og var rekinn úr álverinu

Ólafur Hr. Sig­urðs­son missti vinn­una í Alcoa á Reyð­ar­firði eftir að hafa leikið jóla­svein og gefið gjafir. Yfirmenn greindu upp­reisn­ar­tón í jóla­svein­inum.

Lék jólasvein og var rekinn úr álverinu
Rekinn Ólafur Hr. Sig­urðs­son hefur stundum brugðið sér í gervi jóla­sveins. Hann missti vinn­una eftir að hafa brugðið á leik á vinnu­stað sínum á Reyð­ar­firði.

Ólafur Hr. Sig­urðs­son, starfs­maður í kerskála Alcoa-Fjarð­ar­áls á Reyð­ar­firði, var rek­inn úr starfi sínum í álver­inu á Reyð­ar­firði eftir að hafa glatt fyrr­ver­andi vakt­fé­laga sína neð því að mæta í gervi jóla­sveins með gjafir og skemmti­at­riði fyrir síð­ustu jól. Hann segir frá þessu í aðsendri grein í Aust­ur­frétt.

,,Til að gleðja nú mína gömlu vakt ákvað ég í sam­ráði við leið­toga, sem tekið hafði við af mér, að koma í heim­sókn sem jóla­sveinn enda dregið nærri jólum. Hafði ég gert þetta árið áður og allir haft af því nokk­urt gaman. Nú ég mætti á vakt­ina sem jóla­sveinn og færði vakt­inni nammi og gos. Jafn­framt var ég með svona smá jóla­sveina­uppi­stand,“ skrifar Ólafur sem eitt sinn starf­aði sem bæj­ar­stjóri á Seyð­is­firði.

Ein­hverjir af topp­unum hjá Fjarða­áli þótt­ust greina upp­reisn­ar­tón í jóla­svein­inum

Hann segir að einn félag­anna hefði tekið heim­sókn­ina upp á sím­ann sinn og sett á netið. Þá hafi allt farið af stað.

,,Nokkrum dögum síðar var ég svo kall­aður niður í álver þar sem mér var til­kynnt að inn fyrir dyr þessa álvers kæmi ég ekki aftur. Ein­hverjir af topp­unum hjá Fjarða­áli þótt­ust greina upp­reisn­ar­tón í jóla­svein­inum og að hann hefði gert grín að fyr­ir­tæk­inu. Slíkt væri ekki líð­andi.“

Ólafur óskaði í fram­hald­inu eftir fundi með nýjum for­stjóra Alcoa sem tók honum, að sögn, vel.

,,Nokkrum vikum síðar kom svo nið­ur­staðan. Með fund­inum hafði skiln­ingur hans á mínum málið auk­ist en því miður yrði jóla­sveina­at­riðið ekki fyr­ir­gefið. Ekki væri þó alveg úti­lokað að í fram­tíð­inni yrði kannski hægt að ráða mig aftur,“ skrifar Ólafur og telur ólík­legt að hann fari aftur til Alcoa enda að verða 61 árs og stytt­ist í eft­ir­launa­ald­ur­inn.

Hann lýsir því í grein­inni að hafa átt flekklausan feril hjá Alcoa þar sem hann hafði starfað í fjögur ár. Að vera rek­inn úr vinnu var því ekki inni í mynd­inni.

,,Aldrei hafði mér dottið í hug að ég ætti eftir að verða rek­inn úr vinnu. Hef ætíð lagt mig fram við alla vinnu sem ég hef unnið um dag­ana og oft­ast unnið tals­vert umfram það sem ætl­ast var til af mér. Fáa daga hef ég legið heima veikur og aldrei hefur mér dottið í hug að til­kynna mig veikan þegar ég hef ekki verið það. Hef ætíð lagt mig fram um að koma vel fram við vinnu­fé­laga og vinnu­veit­endur, sama hvort mér hafa þótt þeir skemmti­legir eða leið­in­legir,“ skrifar hann.

Ólafur telur ljóst að hefði hann orðið upp­vís að óreglu væri staða hans betri.

,,Samkvæmt reglum Alcoa hefði ég kannski átt að fá skrif­lega áminn­ingu og svona föð­ur­legt til­tal en það hefði samt verið mjög strangt að mínu mati. Hefði ég mætt fullur til vinnu hefði ég verið sendur heim og boðið að fara í afvötnun,“ skrifar hann.

Pistill­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Álver

Alcoa: Lagasetningin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 milljarða vaxtagreiðslur 2014 og 2015
FréttirÁlver

Alcoa: Laga­setn­ingin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 millj­arða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa hafa almennt verið undir þeim við­miðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breyt­ingin sem á að koma í veg fyrir skattaund­an­skot slíkra fyr­ir­tækja virð­ist því ekki hafa mikil áhrif. For­stjóri Alcoa segir að fyr­ir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breyt­ing­ar­innar á starf­semi álfyr­ir­tæk­is­ins.
Óskattlagðar vaxtagreiðslur Alcoa úr álverinu nema 67 milljörðum króna
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
Stjórnendur álveranna væru lögbrjótar í Noregi
FréttirÁlver

Stjórn­endur álver­anna væru lög­brjótar í Noregi

Norsk meng­un­ar­lög­gjöf er með tals­vert öðru sniði en sú íslenska. Í henni eru heim­ildir fyrir því að refsa stjórn­endum fyr­ir­tækja sér­stak­lega, fremji þau ítrekað það sem kallað er „meng­un­ar­glæpi“. Reglu­legt eft­ir­lit fag­að­ila með vöktun álvera og hegn­ing fyrir brot á meng­un­ar­lögum, sem er við­tek­inn siður í Noregi, þekk­ist ekki á íslandi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár