Konur hættu eftirmeðferð við krabbameini vegna læknaskorts

Þær konur sem hafa und­ir­geng­ist með­ferð við brjóstakrabba­meini hafa þurft að fresta lækn­is­við­tali í allt að ár vegna skorts á læknum. Land­spít­al­inn hefur nú skert þjón­ust­una og til­kynnt kon­unum að þær fái sím­tal við hjúk­un­ar­fræð­ing í stað lækn­is­við­tals. Aldrei hafa verið færri krabba­meins­læknar starf­andi á Íslandi frá því að krabba­meins­lækn­ingar urðu til sem sér­grein upp úr 1980.

Konur hættu eftirmeðferð við krabbameini vegna læknaskorts
Frá Land­spít­al­anum Vegna skorts á krabba­meins­læknum verður eft­ir­lit með end­ur­komu krabba­meins fært í hend­urnar á hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Mynd: Kristinn Magnússon

Vegna land­flótta krabba­meins­lækna hafa konur í bata eftir með­ferð við brjóstakrabba­meini þurft að bíða í ár fram yfir þann tíma sem fyr­ir­hug­aður var eftir við­tali við lækni og eft­ir­liti með end­ur­komu krabba­meins.

Dæmi eru um að konur hafi látið af krabba­meins­með­ferð eftir að lyf­seð­ill rann út, þar sem ekki fékkst reglu­bundið við­tal hjá krabba­meins­lækni.

Göngu­deild blóð- og krabba­meins­lækn­inga hefur nú sent til­kynn­ingu á konur í bata eftir brjóstakrabba­meins­með­ferð um að vegna skorts á krabba­meins­læknum muni héðan í frá verða breytt verk­lag við eft­ir­lit með end­ur­komu krabba­meins­ins. Í stað við­tala hjá krabba­meins­læknum fái kon­urnar sím­tal frá hjúkr­un­ar­fræð­ingi.

Skert þjónusta boðuð með bréfi

„Und­an­farið hefur Land­spít­ali glímt við mik­inn skort á sér­fræð­ingum í krabba­meins­lækn­ingum,“ segir í bréf­inu frá göngu­deild blóð- og krabba­meins­lækn­inga.

Konur sem glímt hafa við brjóstakrabba­mein munu því ekki lengur sjálf­krafa hitta krabba­meins­lækni vegna eft­ir­lits með end­ur­komu krabba­meins­ins eins og verið hefur. Fram að þessu hafa kon­urnar jafnan hitt sér­hæfðan krabba­meins­lækni þrisvar fyrsta árið eftir grein­ingar, síðan á sex mán­aða fresti og að lokum árlega þar til fimm ár eru liðin frá með­ferð.

„Við erum í sögu­legu lág­marki frá því að krabba­meins­lækn­ingar urðu til sem sér­grein“

„Við erum í sögu­legu lág­marki frá því að krabba­meins­lækn­ingar urðu til sem sér­grein upp úr 1980,“ segir Ásgerður Sverr­is­dóttir, krabba­meins­læknir hjá Land­spít­ala. 

Árs seinkun á viðtölum

Ásgerður segir að staðan hafi verið orðin svo slæm, vegna mann­eklu, að konur hafi jafn­vel hætt áfram­hald­andi lyfja­með­ferð. „Bið­tím­arnir voru orðnir óásætt­an­lega langir. Það voru dæmi um að konum væri að seinka í við­töl í allt að 12 mán­uði. Biðin umfram þann tíma sem konur áttu að koma lengd­ist um allt að tólf mán­uði. Það datt þá niður þetta við­tal, og skoðun og mynda­taka. Í vissum til­fellum féll lyfja­með­ferðin niður,“ segir Ásgerður. 

Hún seg­ist ekki geta nefnt fjölda þeirra kvenna sem hætti krabba­meins­með­ferð vegna skorts á læknum og mik­ils bið­tíma eftir við­tölum. „Þetta eru ekki mörg til­vik. Oft höfðu konur sam­band og fengu lyfin end­ur­nýjuð. Í ein­hverjum til­vikum féll með­ferðin niður. Það er óæski­legt.“

Húsnæðismálin hrekja lækna úr landi

Að mati Ásgerðar hafa hús­næð­is­mál Land­spít­al­ans einna mest áhrif á þá ákvörðun ungra lækna að starfa erlendis frekar en á Íslandi. „Það eru fjöl­þættar skýr­ingar. Að miklu leyti hvernig staðan í heil­brigð­is­kerf­inu hefur verið. Það hefur lengi staðið til að byggja nýjan spít­ala, en fram­kvæmdin á því er ekki komin vel af stað. Við búum við mik­inn hús­næð­is­skort. Það hefur mjög mikil áhrif á vinnu­um­hverfi,“ segir hún. „Það gengur mjög illa að byggja upp ein­ingar, meðal ann­ars brjósta­mið­stöð, eins og ger­ist best erlendis. Við höfum ekki hús­næði til að gera það sem við höfum verið að reyna að koma af stað þar. Þótt við séum að vinna eftir slíku mód­eli. Hús­næð­is­málin eru lyk­il­at­riði í því að fólk ákveði að fara aftur úr landi eða velji að koma ekki heim úr sér­námi. Við höfum orðið fyrir hvoru tveggja. Við höfum orðið fyrir því að margir ungir krabba­meins­læknar fara aftur út og svo að þeir komi ekki heim eftir sér­nám.“

Reynt að einkavæða aðgerðir vegna brjóstakrabbameins

Á sama tíma og veru­legur skortur hefur verið á krabba­meins­læknum hefur auk­ist þrýst­ingur á að einka­væða með­ferðir við brjóstakrabba­meini. Í októ­ber 2014 lögðu for­svars­menn lækn­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar ehf. til við heil­brigð­is­ráðu­neytið að stofnuð yrði og starf­rækt einka­rekin brjósta­mið­stöð sem átti að þjón­usta konur með brjóstakrabba­mein og fram­kvæma fyr­ir­byggj­andi aðgerðir á þeim sem eru arf­berar fyrir stökk­breyt­ing­arnar BRCAI og BRCAII, sem auka veru­lega líkur á brjóstakrabba­meini.

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra hefur enn ekki tekið afstöðu til þess hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands ættu að gera samn­ing við Klíník­ina um að ríkið nið­ur­greiði aðgerðir hjá Klíník­inni.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í stefnu­ræðu sinni í jan­úar að nið­ur­skurður hefði „kallað fram hug­hrif hjá stórum hluta þjóð­ar­innar um að sam­fé­lags­sátt­máli um tryggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hafi brostið“. Þá sagði hann að rík­is­stjórnin hefði gert heil­brigð­is­mál að for­gangs­verk­efni. „Aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála á síð­ustu árum hafa ekki náð að lækna þessi hug­hrif.“ 

Stundin ræddi við konu sem er í bata eftir brjóstakrabba­meins­með­ferð og fékk til­kynn­ingu um breytt verk­lag í eft­ir­með­ferð. „Þetta var nátt­úr­lega ekk­ert í lík­ingu við það að hitta sjálfan lækn­inn,“ sagði hún.

Bréf til kvenna í eftirliti eftir krabbameinsmeðferð

Skert þjónusta við konur í bata af brjóstakrabbameini útskýrð í bréfi

Und­an­farið hefur Land­spít­ali glímt við mik­inn skort á sér­fræð­ingum í krabba­meins­lækn­ingum. Þeir sér­fræð­ingar sem eru í vinnu hjá okkur eru því störfum hlaðnir og hafa haft fleiri verk­efni en þeir hafa með góðu móti kom­ist yfir. Þetta hefur meðal ann­ars leitt til þess að bið eftir eft­ir­liti hefur lengst. 

Gagnger end­ur­skoðun hefur und­an­farið farið fram á vinnu sér­fræð­ing­anna og ann­arra á krabba­meinsein­ing­unni, í því skyni að nýta krafta þeirra sem best í þeim verk­efnum sem þeir einir geta sinnt, s.s. krabba­meinslyfja­með­ferð og halda þannig uppi þeirri mik­il­vægu þjón­ustu við sjúk­linga spít­al­ans. 

Til að styrkja þjón­ust­una munu hjúkr­un­ar­fræð­ingar koma í auknum mæli að eft­ir­liti brjóstakrabba­meins­greindra, sem er í sam­ræmi við það sem ger­ist í nágranna­löndum okkar. 

Þú mátt því eiga von á því að hjúkr­un­ar­fræð­ingar deild­ar­innar muni hringja í þig á næstu mán­uðum og fara yfir stöð­una. Hann mun síðan vera í sam­bandi við krabba­meins­lækni eftir því sem við á.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár