Fyrsti umhverfisráðherrann segir Íslendinga til í að „böðlast á náttúrunni“ fyrir peninga

Júlíus Sólnes, fyrsti ráð­herra umhverf­is­mála, gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir að hunsa ákvörðun Úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­lind­ar­mála um að stöðva fram­kvæmdir við lagn­ingu háspennu­línu að Bakka yfir hraun sem nýtur verndar sam­kvæmt nýjum nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Fyrsti umhverfisráðherrann segir Íslendinga til í að „böðlast á náttúrunni“ fyrir peninga
Bakki Þýska fyr­ir­tækið PCC hyggst byggja kís­il­verk­smiðju á Bakka.

Fyrsti ráð­herra umhverf­is­mála hér á landi, Júlíus Sólnes, gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina harð­lega fyrir að hunsa ákvörðun Úrskurða­nefndar umhverfis- og auð­lind­ar­mála um að stöðva fram­kvæmdir við lagn­ingu háspennu­lína frá Þeista­reykjum og Kröflu að Bakka. „Á bak við tjöldin blasir ein­beittur vilji til að gefa skít í alla nátt­úru­vernd, ef pen­ingar eru í boði,“ segir ráð­herr­ann fyrr­ver­andi á Facebook-síðu sinni í dag. 

Júlíus Sólnes
Júlíus Sólnes

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi í gær að leggja fram frum­varp um lagn­ingu háspennu­lína að kís­il­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins PCC á Bakka. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra fer fyrir frum­varp­inu en þau munu veita Lands­neti fram­kvæmda­leyfi með lögum og heim­ild til að reisa lín­urnar, þvert á ákvörðun Úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­lind­ar­mála sem stöðv­að­aði fram­kvæmd­irnar í síð­asta mán­uði að kröfu Land­verndar á grund­velli nýrra nátt­úru­vernd­ar­laga, sem tryggja átti verndun hrauna.

Í lög­unum, sem lesa má hér, er kveðið á um að jarð­minjar njóti sér­stakrar verndar, þar á meðal hraun sem mynd­uð­ust eftir ísöld. Samkvæmt þeim er óheim­ilt að raska jarð­minjum, eins og eld­hraunum, eld­vörpum, gervi­gígum og hraun­hellum, „nema brýna nauð­syn beri til og sýnt þyki að aðrir kostir séu ekki fyrir hendi.“

Ferli fram­kvæmd­anna var hins vegar þegar hafið þegar lögin voru sam­þykkt á Alþingi fyrir tæpu ári síðan.

Uppnám var hjá aðstand­endum fram­kvæmd­anna, sveit­ar­fé­lag­inu Norð­ur­þingi og full­trúum stétt­ar­fé­laga á svæð­inu vegna þess að útlit var fyrir að 80 millj­arða króna fram­kvæmdir frest­uð­ust.

Júlíus segir í færslu sinni að þegar hann tók þátt í að koma á ráðu­neyti umhverf­is­mála á Íslandi fyrir rúm­lega ald­ar­fjórð­ungi, hafi hann strax orðið var við tví­skinn­ung Ísland­inga, aðal­lega vald­hafa, í umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­málum. „Við þótt­umst þá, og þykj­umst vænt­an­lega enn, búa í hrein­asta og umhverf­is­væn­asta landi heims. Samt vorum við með allt niður um okkur í sorp­hirðu- og hol­ræsa­málum, þannig að skömm var að. Ástandið hefur að vísu batnað eitt­hvað, en er þó hvergi nærri í lagi. Og þegar von er á gróða og atvinnu­mögu­leikum vegna ein­hverra fram­kvæmda, fá flestir doll­ara­glampa í augun og eru sam­mála um að böðl­ast á nátt­úr­unni, ef það er for­senda slíkra fram­kvæmda,“ skrifar hann. 

„Nú tekur tapp­ann úr. Samtímis því að við berjum okkur á brjóst og þykj­umst fremst meðal þjóða í að virða nýjan lofts­lags­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna, París 2015, ákveða yfir­völd að hunza ákvörðun Úrskurð­ar­nefndar um að stöðva lagn­ingu háspennu­lína til Bakka vegna kæru Land­verndar og láta skoða fram­kvæmd­ina betur. Tregða við að fisk­eldi og jafn­vel stærri verk­smiðjur sæti mati á umhverf­is­á­hrifum er einnig vel­þekkt. Svo virð­ist að nátt­úr­vernd og umhverf­is­vit­und á Íslandi sé í formi Potem­kin­tjalda til þess að villa um fyrir umheim­inum. Á bak við tjöldin blasir ein­beittur vilji til að gefa skít í alla nátt­úru­vernd, ef pen­ingar eru í boði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár