Jón Ásgeir sakar Kolbein um „kranablaðamennsku“

Blaða­mennska Kolbeins er Jóni Ásgeiri ekki að skapi en hann gagn­rýnir blaða­mann Frétta­blaðs­ins harð­lega í pistli á Vísi í dag.

Jón Ásgeir sakar Kolbein um „kranablaðamennsku“

Jón Ásgeir Jóhann­es­son svarar í dag gagn­rýni sem birt­ist í dálknum Frá degi til dags í Frétta­blað­inu í gær. Í pistl­inum sem birt­ist á Vísi í morgun sakar Jón Ásgeir sér­stakan sak­sókn­ara aftur um lygar en fyr­ir­sögn pistils­ins er „Lygi sak­sókn­ara er kjarni máls­ins“. Þá sakar hann blaða­mann Frétta­blaðs­ins um yfir­borðs­blaða­mennsku.

Forsaga máls­ins er sú að á mánu­dag var birtur pist­ill eftir Jón Ásgeir í Frétta­blað­inu þar sem hann gagn­rýndi dóm­stóla og sér­stakan sak­sókn­ara vegna dóms­mála sem voru höfðuð gegn honum.

Í gær gagn­rýndi Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, blaða­maður Frétta­blaðs­ins, pistil Jóns Ásgeirs og benti á rang­færslur í túlkun hans á nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Aurum-mál­inu.

Segir viðskipti sín klædd í glæpabúning

Í pistli sínum á mánu­dag­inn vændi Jón Ásgeir sér­stakan sak­sókn­ara um lygar. „Hæsti­réttur ómerkti á mið­viku­dag sýknu hér­aðs­dóms í svoköll­uðu Aurum-máli, þar sem ég er ákærður sem hlut­deild­ar­maður í við­skiptum sem áttu sér stað vorið 2008. Um var að ræða full­kom­lega eðli­leg við­skipti sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara reynir að klæða í glæpa­bún­ing,“ segir hann. „Það er skelfi­legt að upp­lifa þá til­finn­ingu að Hæsti­réttur haldi hlífi­skildi yfir heið­ar­legum emb­ætt­is­manni en láti rétt­indi fjög­urra ein­stak­linga lönd og leið.“

„Kolbeinn Ótt­ars­son Proppe, blaða­maður Frétta­blaðs­ins og stak­steina­höf­undur Morg­un­blaðs­ins féllu í djúpan pytt yfir­borðs­blaða­mennsku í gær.“

Kolbeinn
Kolbeinn Gagn­rýndi pistil Jóns Ásgeir og benti meðal ann­ars á rang­færslur í túlkun Jóns Ásgeirs á nið­ur­stöðum Hæsta­réttar í Aurum-mál­inu.

Málað með hans eigin litum

Daginn eftir að pistill­inn birt­ist skrif­aði Kolbeinn Frá degi til dags í Frétta­blað­inu. Þar sagði hann að það væri skilj­an­legt að maður sem hefur verið í dóm­sal í þrettán ár líti ekki hlut­lausum augum á dóms­kerfið.

„Jón Ásgeir rekur þar í nokkru máli hve trú­verð­ugt það sé að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af því að einn með­dóm­ara í hér­aðs­dómi, Sverrir, hafi verið bróðir eins sak­born­inga, Ólafs Ólafs­sonar. Ekki er annað að skilja á Jóni Ásgeiri en að þetta sé ástæðan fyrir því að Hæsti­réttur vísar mál­inu aftur heim í hérað. „Af hverju er svona rugl í kerf­inu tekið út á okkur sem vorum sýkn­aðir?“ spyr hann. 

„Þetta er allt gott og blessað, nema fyrir það smá­at­riði að Hæsti­réttur byggði sína nið­ur­stöðu ekki á skorti sér­staks sak­sókn­ara á ætt­fræði­þekk­ingu, heldur því að Sverrir Ólafsson úttal­aði sig um emb­ætti sér­stakt sak­sókn­ara. Mögulega hentar sú mynd sem Jón Ásgeir málar upp honum og hans mál­stað betur en sú rétta, en hún er engu að síður röng, þótt hún sé máluð með hans eigin litum,“ skrifar Kolbeinn.

Frá degi til dags
Frá degi til dags Kolbeinn sagði meðal ann­ars: „Enskur máls­háttur segir eitt­hvað á þá leið að ef það gengur eins og önd og hljómar eins og önd þá sé lík­leg­ast um önd að ræða. Þann ágæta máls­hátt má heim­færa á væn­i­sýki.“

Gagnrýnir „kranablaðamennsku“

Nú í morgun er svo birt svar Jóns Ásgeir við þessum orðum Kolbeins, á Vísi. Þar segir Jón Ásgeir að yfir­borðs­blaða­mennska sé oft ráð­andi á Íslandi. „Yfir­borðs­blaða­mennska felst gjarnan í því að blaða­menn skrifa fréttir án þess að reyna að gægj­ast undir yfir­borðið til að koma auga á kjarna máls­ins. Oft felur þetta í sér að blaða­menn taka gagn­rýn­is­laust við texta frá þriðja aðila og birta. Ein­hverjir hafa kallað slíka blaða­mennsku „krana­blaða­mennsku“. 

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppe, blaða­maður Frétta­blaðs­ins og stak­steina­höf­undur Morg­un­blaðs­ins féllu í djúpan pytt yfir­borðs­blaða­mennsku í gær, þegar þeir fjöll­uðu um grein mína, sem birt­ist í Frétta­blað­inu sl. mánu­dag,“ skrifar Jón Ásgeir og bætir því við að það sé „raunar ekki nýlunda að stak­steina­skrif risti grunnt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár