„Íslamska ríkið“ braust inn á Njáluslóðir

Vefsíðan njala.is hökkuð af aðila sem seg­ist vera ISIS

„Íslamska ríkið“ braust inn á Njáluslóðir

Aðilar sem segj­ast vera á vegum íslamska rík­is­ins, ISIS, hafa brot­ist inn á vef­síðu Sögu­set­urs­ins á Hvols­velli, sem er til­einkuð Brennu-Njáls sögu. 

Á vef­slóð­inni njala.is mátti sjá skila­boð frá hópnum eða aðil­anum sem er að baki inn­brot­inu: „Hakkaður af Íslamska rík­inu. Við erum alls staðar.“

Íslamska ríkið á Njáluslóðum
Íslamska ríkið á Njáluslóðum „Hakkað af Íslamska rík­inu“, segir nú á vef­síðu Sögu­set­urs­ins á Hvols­velli.

Hluti af árás á heimsvísu

Á síð­unni var auk þess birtur fáni Íslamska rík­is­ins, með áletr­uðum skila­boðum á arab­ísku: „Það er eng­inn Guð, nema Guð.“ Þegar farið var inn á njala.is hljóm­aði arab­ískt lag, svo­kallað „nasheed“. Nú hafa skemmd­irnar á síð­unni verið lag­færðar.

Skemmd­ar­verkin á njala.is eru hluti af víð­tækri tölvu­árás sömu aðila um allan heim um helg­ina. Fyr­ir­tæki, bruggverk­smiðjur, dýra­garður, veit­inga­staðir, hótel og fleira hafa orðið fyrir barð­inu á þeim. Í skila­boð­unum frá ISIS var vísað á slóð yfir á Facebook-síðu með lista yfir vef­síður um allan heim sem höfðu verið hakk­aðar. Þeirri Facebook-síðu hefur nú verið lokað.

Und­an­farna mán­uði hefur Íslamska ríkið, eða fylg­is­menn þess, staðið fyrir vef-jihad, eða „heilögu stríði“ á vefnum, sem hefur beinst gegn kirkjum, banda­ríska rík­inu og fleiri aðilum.

Boða píslarvætti með myndum af íslenskri náttúru

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir af her­skáum ísla­mistum teng­ist Íslandi. Síðasta haust kom á dag­inn að ISIS væri með skráð lén á Íslandi, en því var lokað í kjöl­farið af ákvörðun ISNIC, sem sér um útleigu íslenskra vefslóða. Var það í fyrsta sinn sem ISNIC lok­aði vef­svæði vegna inni­halds efnis á síð­unni. 

Ekki er lík­legt að árásin á Njálu­slóðir teng­ist þeim aðgerðum.

Þá er eitt vin­sælasta mynd­bandið á Youtube, sem hefur skírskotun til heilags stríðs, lagið Hermenn Allah spilað yfir mynd­skeiðum af íslenskri nátt­úru. Yfir tvær millj­ónir manna hafa horft á mynd­bandið. Þar er heitið á her­menn Allah og fagnað deg­inum sem písl­ar­vætti verður náð.

Ákall til hermanna Allah
Ákall til her­manna Allah Yfir mynd­skeiðum af íslenskri nátt­úru er sungið: „Við sækjum fram sem her­menn, brjótum óvin­inn undir okkur, með Kóran Drottins sem upp­sprettu.“

Reynisdrangar
Reyn­is­drangar „Fram að orust­unni... við svörum kall­inu, snúum aftur sem her­menn.“

Neskaupstaður
Nes­kaup­staður „Og það fyllir okkur nýrri full­vissu um að dagur písl­ar­vætt­is­ins sé stór­feng­legur sigur.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár