Innanríkisráðuneytið verður að styðja betur við starfsemi Ríkissaksóknara. Frá árinu 2008 hefur það til dæmis ekki óskað eftir fjárlagatillögum frá embættinu sem byggja á raunverulegri fjárþörf þess til að geta sinnt hlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Ríkissaksóknara. Þá segir að embætti Ríkissaksóknara hafi ítrekað vakið athygli ráðuneytisins á því að fjárhagsstaða þess kæmi í veg fyrir að það gæti afgreitt sakamál innan eðlilegs tíma og sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu nægilega vel. Oft hefur verið fátt um svör frá ráðuneytinu, eins og segir í skýrslunni. Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, segir þá staðreynd að stjórnvöld, ráðuneyti og ráðherrar hafa í gegnum tíðina sýnt verkefnum ákæruvaldsins lítinn skilning standa upp úr í skýrslunni að sínu mati. „Þá á ég við að hvorki hefur verið skilningur á mikilvægi né umfangi verkefnanna,“ segir Sigríður í svari við fyrirspurn Stundarinnar. Þá segir hún að í skýrslunni sé lögð áhersla á sjálfstæði ríkissaksóknara og ákæruvaldsins. „En sjálfstæðið fer fyrir lítið ef embættinu er ekki gert kleift að sinna verkefnum sínum sökum fjárskorts.“
Innanríkisráðuneytið svaraði ekki bréfum Ríkissaksóknara
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir stjórnvöld, ráðuneyti og ráðherra hafa í gegnum tíðina sýnt verkefnum ákæruvaldsins lítinn skilning. Fjársvelti stofnunarinnar ógnar réttaröryggi borgaranna.
Mest lesið

1
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

2
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Nýstirni í skáldsagnaheiminum hefur orðið fyrir aflýsingu eftir að gervigreind greindist í margrómuðu verki hans. Sjálfur segist hann að gervigreind hafi ekki verið til þegar hann lauk fyrsta uppkasti.

4
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Litli spítalinn verður opnaður í húsnæði í eigu stofnanda Samherja.

5
Netanjahú „lokar“ Vesturbakkanum eftir árás tveggja manna
Tveir Palestínumenn réðust á ísraelska hermenn. Netanjahú segir „stóra árás“ hafa verið stöðvaða. Ben-Gvir vill leysa upp palestínsk stjórnvöld. Kosningar á þriðjudag.

6
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Alríkissaksóknari segir manninn hafa aflað upplýsinga um framleiðslu brynvarinna ökutækja, skotfæra og sprengiefna, auk starfsfólks og hernaðarmannvirkja.
Mest lesið í vikunni

1
Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir
Ég, hóran
Fimmtíu og sjö karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðguðu henni í hópi. Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir brandara um „hórur“ í ræktinni endurspegla sama tilkall til kvenna.

2
Íbúum boðnar „mútur“ fyrir að samþykkja gagnaver
Andstaða íbúa stöðvaði eða tafði að minnsta kosti 75 gagnaverkefni í Bandaríkjunum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í Pennsylvaníu reyna íbúar að stöðva gagnaver og háspennulínu.

3
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
Þegar Halla Bergþóra Björnsdóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna löggæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekkert erindi í lögregluna. Hún lét það ekki á sig fá, varð lögreglustjóri og loks ríkislögreglustjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erfiðum málum og fengið hótanir. Á sama tíma hefur hún öðlast skarpari sýn á lífið, sterkari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakklæti fyrir allt það góða.

4
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

5
Lukkaðist loks að virkja Gullfoss
Eigendur að Gullfosskaffi hafa safnað digrum sjóðum. Þeir hófu innheimtu á bílastæði sínu á sama tíma og ríkisstjórnin kynnti nýjan náttúrupassa fyrir svæðið. Ríkið hefur lagt til meira en 170 milljónir króna að núvirði í stígagerð við Gullfoss.

6
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
Lula Brasilíuforseti og Flavio Bolsonaro, mótframbjóðandi hans, áttu í harkalegum kappræðum viku fyrir síðari umferð forsetakosninganna.
Mest lesið í mánuðinum

1
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.

2
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

3
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Wojciech Jarosz vann á Keflavíkurflugvelli en eftir örlagaríkt frí í Karíbahafinu sækir hann nú endurhæfingu á Grensásdeild í von um að geta staðið aftur upp einn daginn. Sjaldgæfur kvilli sem byrjendur á brimbrettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti.

4
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.

5
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi.

6
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, leggst gegn stólakaupum fyrir borgarfulltrúa sem gert er ráð fyrir í viðauka við fjárfestingaáætlun borgarinnar. Það gæti þó verið þörf á nýjum skjá í sal borgarstjórnar.

































Athugasemdir