Íbúar Berlínar slegnir yfir atburðum kvöldsins

Níu látnir og fimm­tíu særðir eftir að flutn­inga­bíl var ekið inn á jóla­markað.

Íbúar Berlínar slegnir yfir atburðum kvöldsins
Mark­að­ur­inn Jóla­mark­að­ur­inn við Breitscheid­tplatz er nærri aðal­versl­un­ar­götu borg­ar­innar – Kurfürstendamm – í vest­ur­hluta borg­ar­innar.

Að minnsta kosti níu eru látnir og fimm­tíu særðir eftir að vöru­bíl var keyrt inn á jóla­markað í Berlín, höf­uð­borg Þýska­lands, fyrr í kvöld. Lög­reglan telur að þetta hafi verið með vilja gert frekar en að slys hafi átt sér stað. Sjón­ar­vottar lýsa atburð­inum þannig að flutn­inga­bílnum hafi verið ekið á fullum hraða inn í mann­hafið með þeim afleið­ingum að fjöl­margir urðu undir. Tveir menn voru í bílnum og er annar þeirra á meðal hinna látnu en hinn hefur verið hand­tek­inn.

Jóla­mark­að­ur­inn við Breitscheid­tplatz er nærri aðal­versl­un­ar­götu borg­ar­innar – Kurfürstendamm – í vest­ur­hluta borg­ar­innar. Mark­að­ur­inn er einn af helstu áfanga­stöðum þeirra ferða­manna sem heim­sækja borg­ina á þessum árs­tíma. Þá sækja fjöl­margir Berlín­ar­búar mark­að­inn árlega. Íbúar borg­ar­innar eru margir hverjir mjög slegnir.

Lög­reglan hefur biðlað til borg­ar­búa að halda sig fjarri svæð­inu þar sem sjúkra­bílar þurfi að hafa greiðan aðgang. Michael Müller, borg­ar­stjóri Berlínar, segir lög­regl­una nú hafa fulla stjórn á aðstæðum. Lög­reglan hefur greint frá því að flutn­inga­bíll­inn sé á pólskum núm­erum og í eigu pólsks flutn­inga­fyr­ir­tækis. Hann hafi haldið af stað til Berlínar frá Póllandi fyrr í dag eða þar til fyr­ir­tækið missti sam­band við bíl­stjór­ann um fjögur leytið að stað­ar­tíma. Talið er mögu­legt að bílnum hafi verið stolið á þeim tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár