Benedikt hættir við formannsframboð í skugga hagsmunaáreksturs

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra hættir við fram­boð til for­mennsku í Holl­vina­fé­lagi Mennta­skól­ans í Reykja­vík, eftir gagn­rýni fyrir hags­muna­á­rekstur. Staðan felur í sér að safna fé hjá einka­að­ilum.

Benedikt hættir við formannsframboð í skugga hagsmunaáreksturs
Benedikt Jóhann­es­son Fjár­mála­ráð­herra vildi gegna stöðu sem getur valdið hags­muna­á­rekstri.

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra hefur dregið fram­boð sitt til for­mennsku í Holl­vina­fé­lagi Mennta­skól­ans í Reykja­vík til baka.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Bene­dikts.

Mót­fram­bjóð­andi Bene­dikts sagði í dag að Benedikt hefði lýst þeirri fyr­ir­ætlun sinni að safna fé hjá einka­að­ilum.

Gagnrýni fyrir hagsmunaárekstur

Benedikt hefur verið gagn­rýndur fyrir að koma sér í stöðu hags­muna­á­rekst­urs, þar sem hann vill gegna for­mennsku í Holl­vina­fé­lagi MR á sama tíma og hann fer með vald yfir fjár­veit­ingum hins opin­bera til fram­halds­skóla­kerf­is­ins. Til­gangur Holl­vina­fé­lags­ins var upp­haf­lega „að skora á Alþingi að tryggja skól­anum við­un­andi fjár­fram­lög,“ sam­kvæmt yfir­lýs­ingu stofn­enda, og fylgdu því þær for­sendur að „óásætt­an­legt [væri] að MR [fengi] lægri fram­lög en sam­bæri­legir skólar.“

Vegna þeirrar gagn­rýni bauð Hrafn­kell Hringur Helgason list­fræði­nemi sig fram gegn Benedikt, sitj­andi for­manni Holl­vina­fé­lags­ins.

Frambjóðendur funduðu

Hrafn­kell Hringur segir í grein á Vísi.is í dag að hann hafi átt „mál­efna­legan fund“ með Benedikt, þar sem hafi komið fram í máli Bene­dikts að hlut­verk for­manns sé að sækja styrki til einka­að­ila. 

„Þar kom fram að störf Holl­vina­fé­lags­ins fælust einna helst í því að hringja í ein­stak­linga og fyr­ir­tæki og safna fjár­munum til styrktar Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Þetta væri einkum á hendi for­manns­ins sjálfs,“ skrifar Hrafn­kell Hringur.

Fram kom í máli stjórn­ar­manns í Holl­vina­fé­lag­inu í lok­uðum Facebook-hópi útskrift­ar­nema MR að félagið hefði á síð­ustu árum safnað 15 millj­ónum króna sem runnið hafi beint til skól­ans.

Fjármálaráðherra í fjársöfnun

Af því mátti ráða að sem for­maður félags­ins gæti fjár­mála­ráð­herra þurft að sækja fé til aðila sem verða fyrir beinum áhrifum af ákvörð­unum ráð­herra, og hafa þar með hag af vel­vild ráð­herr­ans.

Hrafn­kell Hringur kvaðst ótt­ast óum­flýj­an­legan hags­muna­á­rekstur gegndi Benedikt báðum stöðum. 

„Ég bið félags­menn og núver­andi og til­von­andi stjórn­ar­menn um að staldra við og velta fyrir sér þess­ari spurn­ingu: Er við hæfi að sjálfur fjár­mála­ráð­herra Íslands – æðsti aðili fram­kvæmda­valds­ins þegar kemur að fjár­mála­stjórnun hins opin­bera og flutn­ings­maður fjár­laga á ári hverju – stundi það í frí­tíma sínum að hringja í fólk og fyr­ir­tæki fyrir hönd félaga­sam­taka til að biðja um pen­inga­styrki? Ég tel að slíkt sé ekki í anda góðs stjórn­mála­sið­ferðis né vand­aðra stjórn­sýslu­hátta. Þá tel ég einnig að færa megi hald­bær rök fyrir því að athafnir af þessu tagi stang­ist á við siða­reglur ráð­herra,“ skrifar Hrafn­kell.

Segir MR líða fyrir skólasetu stjórnmálamanna

Benedikt greindi frá fyr­ir­ætl­unum sínum um að hætta við fram­boð á skóla­slitum MR í dag, eins og hann lýsir á Facebook, þar sem fram kom að holl­vina­fé­lagið hefði safnað 6 millj­ónum króna í fyrra: „Ég tal­aði líka um að kannski hefði skól­inn liðið fyrir það að margir stjórn­mála­menn hefðu komið úr skól­anum. Þeir væru hræddir um að láta skól­ann njóta jafn­ræðis við aðra skóla af ótta við að vera skaðir um að hygla sínum gamla skóla. Í ljósi þess sagði ég frá því að ég hygð­ist ekki gefa kost á mér til end­ur­kjörs í Holl­vina­fé­lag­inu í þetta sinn, þannig að ekki kæmu upp ásakaniir af þessu tagi í minn garð, þó að svo vildi til að ein­hvern tíma verði staðið við lof­orð um að bætt verði úr hús­næði skól­ans og hann njóti jafn­ræðis við aðra.“

For­manns­kjör í Holl­vina­fé­lagi MR fer fram á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár