Hjúkrunarfræðingur getur ekki séð fyrir barni án aukavinnu

Grunn­laun hjúkr­un­ar­fræð­inga á Land­spít­al­anum duga ekki fyrir lág­marks­neyslu ein­stæð­ings með barn sam­kvæmt form­legum við­miðum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Eftir fjög­urra ára háskóla­nám þurfa hjúkr­un­ar­fræð­ingar að vinna auka­lega á kvöldin, næt­urnar og um helgar til að lifa á lág­marks­neyslu.

Hjúkrunarfræðingur getur ekki séð fyrir barni án aukavinnu
Land­spít­al­inn Hjúkr­un­ar­fræð­ingar sætta sig ekki við kjörin á þjóð­ar­spít­al­anum. Mynd: Kristinn Magnússon

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á grunn­launum á Land­spít­al­anum hefur ekki efni á því að eiga barn, miðað við neyslu­við­mið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Ef hann gerði til­raun til þess að lifa „dæmi­gerðu lífi“ á grunn­launum sínum með eitt barn, miðað við við­mið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, end­aði hann í rúm­lega 140 þús­und króna mínus í hverjum mán­uði, eða í 1,7 millj­óna króna upp­safn­aðri skuld á hverju ári. Á Land­spít­al­anum hafa hjúkr­un­ar­fræð­ingar því unnið á næt­urnar, kvöldin og um helgar til að ná upp þeim launum sem þarf til að lifa mann­sæm­andi lífi. Með barn á fram­færi getur slíkt reynst erfitt en hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa sagt upp störfum vegna ástands­ins og þeir hjúkr­un­ar­fræði­nemar sem útskrif­ast frá Háskóla Íslands í vor hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir muni ekki starfa á Land­spít­al­anum eftir útskrift.

Dæmi um laun og útgjöld hjúkrunarfræðings með eitt barn

Mán­að­ar­laun Útgjöld á mán­uði Dæmigert neyslu­við­mið Grunn­við­mið
Grunn­laun 358.725 kr. Neyslu­vörur
þjón­usta og
tóm­stundir
209.101 kr. 145.568 kr.
Frá­dráttur
í skatt
- 74.305 kr. Afborg­anir
náms­lána
13.452 kr. 13.452 kr.
Aðrar
tekjur, s.s. fjár­magns-
tekjur
0 kr. Sam­göngur 96.290 kr. 22.600 kr.
Barna­bætur 26.818 kr. Hæúsnæði 120.000 kr. 120.000 kr.
Heild­ar­tekjur 296.889 kr. Útgjöld sam­tals 438.843 kr. 301.620 kr.
Munur á tekjum og neyslu -141.954 kr. -4.731 kr.

Formleg fram­færslu­við­mið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Dæmigerð við­mið eiga að end­ur­spegla hefð­bundin heim­ili, hvorki miðað við lág­marks- né lúx­usneyslu. Grunn­við­mið miða við lág­marks­neyslu, sleppir því að eiga bif­reið, og lætur sér nægja um þús­und krónur í mat, drykkj­ar­vörur og dag­vörur til heim­il­is­halds á dag.

Á grunn­launum þyrftu hjúkr­un­ar­fræð­ingar að lifa undir lág­marks­neyslu miðað við byrj­un­ar­laun á Land­spít­al­anum. Eftir fjög­urra ára háskóla­nám fá þeir 358 þús­und krónur í grunn­laun á mán­uði, eða 270 þús­und krónur í ráð­stöf­un­ar­tekjur. Í júní næst­kom­andi munu grunn­laun nýút­skrif­aðra hjúkr­un­ar­fræð­inga hækka í 373 þús­und á mán­uði sem gefur þeim 9 þús­und hærri ráð­stöf­un­ar­tekjur á mán­uði.

Þegar gert er ráð fyrir að hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem á barn, greiði 120 þús­und í leigu á mán­uði, 13 þús­und að með­al­tali í náms­lán og fái 26 þús­und á mán­uði í barna­bætur, þarf hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn 439 þús­und krónur á mán­uði til að lifa sam­kvæmt „dæmi­gerðu neyslu­við­miði“ vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Viðmiðin eiga að end­ur­spegla hefð­bundin heim­ili, hvorki miðað við lág­marks- né lúx­usneyslu.  

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar lifa því við kröpp kjör sam­kvæmt form­legum mæli­kvarða. Ef hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn heldur sig við lág­marks­neyslu lendir hann í skuld upp á 4.731 krónu á mán­uði, eða rúm­lega 56 þús­und króna skulda­söfnun á ári. Lág­mark­s­við­mið miða að því að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn haldi sig við það sem hann þarf að lifa af, sleppir því að eiga bif­reið, hættir alfarið að kaupa „veit­ingar“ og lætur sér nægja um þús­und krónur í mat, drykkj­ar­vörur og dag­vörur til heim­il­is­halds á dag. Þau gera ekki ráð fyrir óvæntum útgjöldum.

Hætti vegna álagsIngi­björg Ásta segir glatað að þurfa að vinna á nótt­unni og kvöldin til að fá mann­sæm­andi laun.

Vinna nætur og kvöld

Oft og tíðum vinna hjúkr­un­ar­fræð­ingar þó langar vinnu­stundir og mikla yfir­vinnu og ná því hærri ráð­stöf­un­ar­tekjum á mán­uði. „Það er glatað að þurfa að vinna á nótt­unni og á kvöldin til að fá mann­sæm­andi laun,“ segir Ingi­björg Ásta Claessen hjúkr­un­ar­fræð­ingur og bætir við: „Að geta ekki verið með fjöl­skyld­unni sinni um helgar og að þurfa að vinna þegar börnin eru búin á leik­skól­anum.“

Nýverið sagði Ingi­björg Ásta upp störfum á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans eftir að hún fór í fæð­ing­ar­or­lof í júlí í fyrra. „Þegar maður vinnur stans­laust, fest­ist maður í ákveð­inni hring­iðu. Ég vakna, fer í vinn­una, sef, vinn svo aftur. Það er ekki eðli­legt og ekki heil­brigt að vera svo búin á því og geta ekki sinnt neinu eftir vakt. Þegar ég eign­að­ist Kolbein Garp steig ég út úr þessu umhverfi og sá vinn­una í öðru ljósi,“ segir Ingi­björg sem á tvo drengi með sam­býl­is­manni sínum, Krist­ó­feri Egg­erts­syni, en fyrir eiga þau Styrmi Flóka, þriggja ára.

„Ég hélt að með þessa menntun væri ég alveg örugg.“ 

Fólk hrökklast úr starfi

Síð­ast­liðin sex ár hefur Ingi­björg starfað á bráða­mót­tök­unni og var í stöðu vakt­stjóra þegar hún sagði upp störfum. „Ég hélt að með þessa menntun væri ég alveg örugg. En eftir sex ár í starfi var ég með 415 þús­und í grunn­laun á mán­uði. Við fáum í raun­inni ekki borgað fyrir álagið og ábyrgð­ina sem við berum á fólki. Það er mikið álag að vera með líf ein­hvers í lúk­unum en þurfa á sama tíma að sinna fullt af öðrum verk­efnum. Ofan á það vantar alltaf ein­hvern á vakt og það er ákveð­inn mórall sem mynd­ast í kringum það. Á Land­spít­al­anum taka allir auka­vaktir og það er eins og að vinnan göfgi mann­inn – að fólk eigi bara að vinna og vinna og vinna,“ segir Ingi­björg Ásta. Hún segir að þrátt fyrir ástandið hafi starfsand­inn verið góður á bráða­mót­tök­unni og sam­starfs­fólkið haldið henni í starf­inu eins lengi og raun ber vitni.

Hún segir að ein­hver hluti hjúkr­un­ar­fræð­inga stefni á að starfa í flug­freyju­starfi. „Ég held að margir séu orðnir þreyttir á ástand­inu eins og ég. Eftir að ég sagði upp hef ég heyrt frá fleirum sem hafa gert hið sama og margir eru bara að tóra þangað til flugið byrjar í sumar. Svo ætla nem­arnir ekki að koma. Það er ein­hver hrina í gangi – fólk er bara að hrökkl­ast í burtu,“ segir Ingi­björg Ásta.

Nemar neita að vinna

Hjúkr­un­ar­fræði­nemar sem verða brauskráðir frá Háskóla Íslands í vor hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir muni ekki starfa á Land­spít­al­anum eftir útskrift. Elísabet Brynjars­dóttir hjúkr­un­ar­fræði­nemi segir sorg­legt að geta ekki unnið á Land­spít­al­anum í ljósi aðstæðna: „Auðvitað langar mig að vinna á Land­spít­al­anum, mig hefur alltaf dreymt um að vinna á spít­al­anum, stærsta vinnu­stað hjúkr­un­ar­fræð­inga á Íslandi. Hjá sveit­ar­fé­lög­unum eru hins vegar boðin aðeins betri kjör og fyrir mér er þetta prinsipp­mál. Ég vil standa með minni stétt, maður verður líka að spyrja sjálfan sig hvað maður er til­bú­inn til að sætta sig við.“

Ógnar öryggiElísabet bendir á að álagið sé ógn við öryggi sjúk­linga.

Hjúkrunarfræði ekki á allra færi

Elísabet seg­ist ekki sætta sig við að eftir fjög­urra ára háskóla­nám þurfi hjúkr­un­ar­fræð­ingar að vinna myrkr­anna á milli, geta ekki safnað sér fyrir íbúð og hvað þá hugsað um barn: „Það er nátt­úr­lega ekki á allra færi að vinna svona mikla yfir­vinnu. Sumir vinna til dæmis á dag­deildum sem bara eru opnar á dag­inn eða eiga börn sem þeir geta ekki verið frá á nótt­unni.“

„Sumir segja að hjúkr­un­ar­fræð­ingar – eða hjúkr­un­ar­fræði­nemar – séu að ógna öryggi sjúk­ling­anna með því að fara í verk­föll eða neita að vinna á Land­spít­al­anum. Ég tel að það sé á ábyrgð rík­is­ins, sem á að semja við okkur um mann­sæm­andi laun og á ábyrgð Land­spít­al­ans að ákveða hvers konar vinnu­um­hverfi þeir vilja bjóða upp á. Er til dæmis eðli­legt að leysa mann­eklu­vand­ann með því að biðja fólk um að vinna tvö­faldar auka­vaktir trekk í trekk? Ég held að það ógni öryggi sjúk­lings­ins, þegar hjúkr­un­ar­fræð­ingur vinnur á morgun- og kvöld­vakt í 16 klukku­stundir sam­fleytt og hefur jafn­vel ekki fengið færi á að fara í mat­ar­pásu yfir dag­inn,“ útskýrir Elísabet.

Barnið eða vinnan?

Eftir fjög­urra ára háskóla­nám og jafn­vel sex ára starfs­reynslu vantar hjúkr­un­ar­fræð­ing sem á eitt barn 108 þús­und krónur á mán­uði til að ná við­miði vel­ferða­ráðu­neyt­is­ins um „dæmi­gert líf“ á Íslandi. Ef hann sleppir því hins vegar að eiga barn nær hann að lifa dæmi­gerðu lífi, sam­kvæmt neyslu­við­miðum, að því gefnu að hann finni íbúð sem kostar aðeins 120 þús­und krónur á mán­uði að leigja. Að auki getur hann lagt fyrir um 2.500 krónur á mán­uði til fram­tíðar á grunn­launum. Samkvæmt tölum OECD, Efnahags- og fram­fara­stofn­unar Evrópu, vinna Íslend­ingar að með­al­tali 456 klukku­stundum á ári lengur en Norðmenn á ári, eða sem jafn­gildir nítján sól­ar­hringum. Hvergi í Vestur-Evrópu vinnur fólk fleiri klukku­stundir en á Íslandi, en íbúar Lett­lands, Póllands og Rúss­lands eru næstir fyrir ofan Íslend­inga í yfir­vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár