Heilaæxlið óhreyft vegna verkfalls

Helga Aðal­steins­dóttir kenn­ari er með góð­kynja heila­æxli sem þarf að fjar­lægja. Átti að fara í aðgerð í apríl þegar verk­fall skall á.

Óvinnufær vegna síþreytu
Óvinnu­fær vegna síþreytu Helga kæm­ist til vinnu fljót­lega eftir aðgerð en allt stendur fast vegna verk­falla. Mynd: Úr einkasafni.

Helga Aðal­steins­dóttir, kenn­ari á Ísafirði, hefur verið vikum saman heima í veik­inda­leyfi vegna verk­falla. Hún er með góð­kynja heila­æxli sem veldur síþreytu og því að hún getur ekki sinnt starfi sínu sem grunn­skóla­kenn­ari. Til stóð að skera burt hluta af æxl­inu í apríl en verk­föll heil­brigð­is­stétta hafa valdið því að hún kemst ekki í aðgerð­ina. Hún hefur áður farið í sam­bæri­lega aðgerð og náði þá fljót­lega styrk. Vikum saman hefur hún verið í veik­inda­leyfi og beðið þess að vera kölluð inn í aðgerð­ina sem er ein­föld og getur tryggt að hún kom­ist aftur í vinn­una. Helga hefur ritað samn­inga­mönnum BHM og rík­is­ins opið bréf á blogg­síðu sinni vegna þessa. Þar lýsir hún aðstæðum sínum og biður þá um að semja. 

„Ég er orðin mjög þreytt á að vera haldið í gísl­ingu, langar til að geta tekið þátt í sam­fé­lag­inu og stundað mína vinnu… en það er smá vesen á mér, sko smá bilun í kerf­inu og ég ekki alveg í lagi og þarfn­ast „smá“ við­gerðar á Lansanum... átti sko að fara í aðgerð í mars sem var frestað fram í apríl m.a. vegna upp­safn­aðs vanda eftir lækna­verk­fall svo nú er ég enn að bíða og bíða og bíða....,“ skrifar hún. 

„Ég er orðin mjög þreytt á að vera haldið í gísl­ingu, langar til að geta tekið þátt í sam­fé­lag­inu og stundað mína vinnu.“

Helga segir að hún væri trú­lega komin í vinnu aftur ef allt væri eðli­legt og aðgerðin hefði verið gerð í maí. Biðinni fylgi líka mikið and­legt álag og óvissa um það hvort núver­andi ástand leiði til var­an­legs skaða. 

„...Veit nefni­lega alveg hvað bíður mín ef ég fæ ekki við­eig­andi lækn­is­þjón­ustu... Mjög skert lífs­gæði og örorku­bætur vegna sjón­skerð­ingar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár