Háskólabíó fylltist á hátíð til verndar hálendinu: Salurinn söng fyrir Vigdísi

Háskóla­bíó fullt út að dyrum og fólk varð frá að hverfa. Fjöl­menni frammi í and­dyri að fylgj­ast með hátíð­inni á skjám sem þar voru. Andri Snær hóf erindi sitt með afmæl­is­söng fyrir frú Vigdísi Finn­boga­dóttur.

Háskólabíó fylltist á hátíð til verndar hálendinu: Salurinn söng fyrir Vigdísi

„Við nátt­úru­fólkið erum ekki lít­ill hópur sem auð­velt er að hunsa og hæð­ast að. Nei, við erum fjölda­hreyf­ing,“ sagði Kristín Helga Gunn­ars­dóttir, rit­höf­undur í ræðu sem hún flutti rétt í þessu í Háskóla­bíó þar sem nátt­úru­vernd­ar­sam­tök standa fyrir hátíð til verndar hálendi Íslands, undir heit­inu Para­dís­armissir? „Þetta er bar­átta fyrir fram­tíð­ina. Þetta er orr­ustan um Ísland,“ sagði Kristín sem sagði meðal ann­ars að við þyrftum ný gildi.

„Þetta er orr­ustan um Ísland“

Fullt er út úr dyrum í Háskóla­bíó og varð að loka stóra salnum þegar fleiri komust ekki að. Þá safn­að­ist fólk saman fyrir framan sal­inn og fylgd­ist með hátíð­inni á skjám sem þar voru. Fyrr í dag höfðu um 2.000 manns boðað komu sína á hátíð­ina og því ljóst að það kæmust ekki allir inn: „Þetta snýst um að fylla húsið og umkringja það og gera þetta að við­burði sem fer í sögu­bækur. Mik­il­væg­ustu gest­irnir verða þeir sem kom­ast ekki inn í Háskóla­bíó í kvöld. Þeir gera það sýni­legt að okkur er alvara,“ skrif­aði einn.

Frú Vigdís Finna­boga­dóttir er á meðal þeirra sem eru í salnum, en Andri Snær Magn­as­son hóf erindi sitt með því að ávarpa hana og óska henni til ham­ingju með afmælið í gær. Þá fékk hann Elísa­betu Jök­uls­dóttur rit­höf­und til að leiða afmæl­is­söng fyrir hana og tók sal­ur­inn undir. Vigdís er vernd­ari Land­verndar. 

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, steig í pontu og sagði þetta ögur­stundu, nú stæðum við á tíma­mótum og hefðum val um það hvort hjarta lands­ins yrði klofið eður ei. Nú væri tæki­færi til að snúa para­dís­armissi í para­dís­ar­heimt. 

Hægt er að horfa á beina útsend­ingu frá hátíð­inni hér: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár