Hannes segir Pírata ekki finna „til neinnar ábyrgðar fyrir hönd þjóðarinnar“

Píratar halda áfram að bæta við sig fylgi þótt fram­sókn­ar­menn og sjálf­stæð­is­menn vegi stöðugt að þeim.

Hannes segir Pírata ekki finna „til neinnar ábyrgðar fyrir hönd þjóðarinnar“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands og einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum fyrir hrun, furð­ast að Píratar fái jafn mikið fylgi í skoð­ana­könn­unum og raun ber vitni. Full­yrðir hann að Píratar finni ekki til neinnar ábyrgðar fyrir hönd þjóð­ar­innar.

„Ég skil að vísu, að margir séu ófúsir í skoð­ana­könn­unum til að lýsa yfir stuðn­ingi við vinstri flokk­ana (Icesave-flokk­ana tvo og Bjarta for­tíð),“ skrifar hann á Facebook og bætir við: „Hitt þykir mér furðu­legt, að menn lýsi þess í stað yfir stuðn­ingi við Pírata, sem hafa enga stefnu, nenna ekki að mæta á þing­fundi eða taka þátt í þing­störfum og finna ekki til neinnar ábyrgðar fyrir hönd þjóð­ar­innar, heldur reika inn og út af þingi eftir eigin henti­semi.“ 

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Kapteinn Pírata.

Samkvæmt nýrri könnun MMR eru Píratar með mest fylgi allra flokka á Íslandi, eða 33,2 pró­sent. Eykst fylgi þeirra um eitt pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun.

Fylgi Pírata hefur auk­ist jafnt og þétt und­an­farna mán­uði. Um leið verður flokk­ur­inn fyrir æ meiri gagn­rýni af hálfu sjálf­stæð­is­manna og fram­sókn­ar­manna. Í for­síðu­við­tali DV við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, í júní gaf hann í skyn að Píratar væri bylt­ing­ar­flokkur og sagði þá ógna rót­grónum íslenskum gildum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fylgi stjórnmálaflokka

Píratar í herkví
Úttekt

Píratar í her­kví

Víð­tækrar óánægju gætir innan raða Pírata með vinnu­brögð og fram­göngu Birgittu Jóns­dóttur, þing­manns flokks­ins. Flokks­menn segja hana snið­ganga innri verk­ferla með ólýð­ræð­is­legum hætti. Þá taki hún sér leið­toga­hlut­verk í flokki sem gangi út á leið­toga­leysi. Ástandið innan hreyf­ing­ar­innar er eld­fimara en margir vilja vera láta. Stundin ræddi við á annan tug Pírata sem gegna trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár