Hanna Birna fundaði með ritstjóra í ráðherrabílnum

Hittust leyni­lega tveimur dögum eftir að Gísli lak upp­lýs­ingum til Haraldar

Hanna Birna fundaði með ritstjóra í ráðherrabílnum

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra fund­aði með Haraldi Johann­es­sen, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, þann 22. nóv­em­ber árið 2013 um það leyti sem reiði­bylgja var að rísa vegna leka­máls­ins og öll spjót beindust að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. „Ég hef ekk­ert við þig að tala,” segir Haraldur aðspurður hvað þeim ráð­herra hafi farið á milli á fund­inum. 

Stundin hefur fengið stað­fest að Haraldur fékk far með ráð­herra­bílnum rétt upp úr hádegi þennan dag. Hann kvaddi þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra á Amt­manns­stíg og gekk norður Skóla­strætið. Ráðherra keyrði hins vegar með einka­bíl­stjóra sínum niður á Lækj­ar­götu. Síðar um dag­inn birti inn­an­rík­is­ráðu­neytið til­kynn­ingu á vef sínum þar sem full­yrt var ekk­ert benti til þess að trún­að­ar­gögn hefðu „verið afhent frá emb­ætt­is­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins“. 

Tveimur dögum áður, morg­un­inn 20. nóv­em­ber, hafði Gísli Freyr Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, átt í síma­sam­skiptum við Harald og veitt honum trún­að­ar­upp­lýs­ingar um hæl­is­leit­end­urna Evelyn Glory Joseph og Tony Omos sem Mbl.is byggði frétt sína á þennan dag. Hanna Birna hefur alltaf þver­tekið fyrir að hafa vitað af sekt Gísla. Hún var upp­lýst um sam­skiptin sem hann átti við fjöl­miðla­fólk í skýrslu­töku hjá lög­reglu síð­asta vor, en strax þá kom hún Gísla til varnar og full­yrti að ekk­ert væri óeðli­legt við sam­skipti hans við rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. 

Þegar fund­ur­inn milli Haraldar og Hönnu Birnu átti sér stað hafði mikið gengið á. Þennan sama dag kom fram á DV.is að nefnd­ar­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hygð­ust kalla Hönnu Birnu fyrir nefnd­ina vegna leka­máls­ins. Daginn áður höfðu fyrstu fréttir DV sem ein­blíndu á trún­að­ar­brest inn­an­rík­is­ráðu­neytið birst á vefnum, fréttir með fyr­ir­sögnum á borð við „Lögmenn orð­lausir vegna leka á per­sónu­upp­lýs­ingum“ og „Aðstoð­ar­maður tví­saga og ólga innan ráðu­neyt­is­ins“. Hafði Birgitta Jóns­dóttir þing­kona kraf­ist þess að inn­an­rík­is­ráð­herra bæði hæl­is­leit­end­urna afsök­unar á trún­að­ar­brot­inu.

–––
Þessi frétt er úr prentút­gáfu Stund­ar­innar frá því fyrr á árinu en birt­ist nú í fyrsta skipti hér á vefnum.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár