Hæðist að hugmyndum um gjaldfrjálsar tannlækningar og segir þær „plebbaskap“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gefur lítið fyrir áform Pírata um að fólki verði gert kleift að leita til tann­lækna og sál­fræð­inga óháð efna­hag. „Skyldu vera til Ólymp­íu­leikar í pop­u­l­isma og plebba­skap?“ spyr hann.

Hæðist að hugmyndum um gjaldfrjálsar tannlækningar og segir þær „plebbaskap“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hæð­ist að hug­myndum Pírata um að tann­lækn­ingar og sál­fræði­þjón­usta verði nið­ur­greidd fyrir alla lands­menn með sama hætti og gildir um aðra heil­brigð­is­þjón­ustu. Telur hann slíkar hug­myndir plebba­legar og til marks um popúl­isma.

Þetta kemur fram í færslu sem Brynjar birti á Facebook í kvöld. „Ég hef þjáðst af kvíða og dep­urð auk þess allar tennur eru skakkar og illa hirtar. Mér skilst að allt verði þetta lagað á næsta kjör­tíma­bili í boði Pírata og skatt­greið­enda,“ skrifar Brynjar. „Vegna yfir­þyngdar okkar bræðr­anna höfum við þurft mikið að leita til fóta­að­gerða­fræð­inga til að skafa af okkur lík­þornin. Skil ekk­ert í Pírötum að gera þetta ekki gjald­frítt líka. Skyldu vera til Ólymp­íu­leikar í pop­u­l­isma og plebba­skap?“

Píratar sam­þykktu ályktun í kosn­inga­kerfi sínu í dag um að tann­lækn­ingar verði felldar inn í almennan hluta sjúkra­trygg­inga á Íslandi. Byggir álykt­unin á þeirri for­sendu að tryggja þurfi greiðan aðgang að tann­lækn­ingum líkt og gildir um aðra heil­brigð­is­þjón­ustu. Fjár­hagur fólks megi ekki vera fyr­ir­staða gegn því að fólk geti við­haldið tann­heilsu sinni. „Með það að leið­ar­ljósi skulu tann­lækn­ingar vera hluti af almennri heil­brigð­is­þjón­ustu og nið­ur­greiddar fyrir alla lands­menn með sama hætti og önnur heil­brigð­is­þjón­usta,“ segir í álykt­un­inni.

Áður hefur flokk­ur­inn sam­þykkt til­lögu um gjald­frjálsa sál­fræði­þjón­ustu. Um er að ræða aðgerðir sem sam­tals gætu kraf­ist rík­is­út­gjalda upp á hátt í annan tug millj­arða. Hafa full­trúar Píratar bent á að ef rík­is­sjóður taki til sín í auknum mæli þá auð­lind­arentu sem skap­ast í sjáv­ar­út­vegi, svo sem með upp­boði afla­heim­ilda, geti lík­lega enn meiri fjár­munir runnið í rík­is­sjóð og staðið undir kostn­aði við aukna nið­ur­greiðslu heil­brigð­is­þjón­ust­unnar á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár