„Góða fólkið“ versta orð ársins í Þýskalandi

Dómnefnd þýskra mál­vís­inda- og blaða­manna hafa valið „Góða fólkið“ sem óyrði, eða „Unwort“ árs­ins. „Með því að ásaka ein­hvern um að vera partur af „Góða fólk­inu“ eru umburð­ar­lyndi og hjálp­semi máluð upp sem heimska og barna­skapur“ segir í umsögn dóm­nefndar.

„Góða fólkið“ versta orð ársins í Þýskalandi
„Unwort“ Hugtakið nota þjóð­verjar yfir slæm eða léleg orð sem kom­ast í tísku.

„Góða fólkið“ eða „Gutmensch“ hefur verið valið óorð árs­ins 2015 í Þýska­landi, að mati dóm­nefndar þýskra mál­vís­inda- og blaða­manna. Eins og dóm­nefndin kom að hefur orðið lengi verið í notkun, en fékk nýtt notk­un­ar­gildi á síð­asta ári, sér­stak­lega í sam­hengi við umræður um flótta­manna­mál.

„Með því að ásaka ein­hvern um að vera partur af „Góða fólk­inu“ eru umburð­ar­lyndi og hjálp­semi máluð upp sem heimska og barna­skapur.“

„Þeir sem fengu stimp­il­inn „Góða fólkið“ árið 2015 voru sér­stak­lega þeir sem vildu hjálpa flótta­fólki og börð­ust gegn árásum á flótta­manna­búðir“ segir í til­kynn­ing­unni. „Með því að ásaka ein­hvern um að vera partur af „Góða fólk­inu“ eru umburð­ar­lyndi og hjálp­semi máluð upp sem heimska og barna­skapur.“

Brautryðjandinn Elliði Vignisson

Hugtakið hefur mikið verið notað á Íslandi und­an­farin miss­eri, og hófst almenn notkun þess með pistli sem Elliði Vign­is­son skrif­aði í októ­ber árið 2014 með fyr­ir­sögn­inni „„Góða fólkið“ og umræðan“. Þar upp­nefnir Elliði þá sem gagn­rýna Vigdísi Hauks­dóttur, og segir m.a. varð­andi umræður um inn­flytj­enda­mál:

„Þeir sem ræða inn­flytj­enda­mál og þá sér­stak­lega mál­efni hæl­is­leit­enda tipla á bæði hálum og þunnum ís. „Góða fólkið“ mætir allri slíkri umræðu með ásök­unum um nas­isma, ras­isma og útlend­inga­hatur.“

Var pist­ill Elliða mikið ræddur þegar hann birt­ist. Fékk hann bæði miklar und­ir­tektir í ýmsum hópum, en margir hafa gagn­rýnt Elliða, og bent á að með pistl­inum hafi Elliði í raun lagst gegn þeim pól gagn­rýn­innar umræðu sem hann væri ósam­mála.

Hér er frétt Spiegel um málið, og hér má lesa pistil Elliða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár