Varasamt efni í Cheerios, Ritz-kexi og Doritos

Efni úr plöntu­eitri, sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin hefur varað við að valdi lík­lega krabba­meini hjá mönnum, er að finna í vin­sælum banda­rískum mat­vörum.

Varasamt efni í Cheerios, Ritz-kexi og Doritos

Ný banda­rísk rann­sókn hefur leitt í ljós að tölu­vert magn af glýfosat, virka efn­inu í flestu plöntu­eitri, er að finna í vin­sælum mat­vælum á borð við Cheerios, Doritos, Oreo og Ritz-kexi. 

Efnið hefur verið tölu­vert til umræðu und­an­farin miss­eri sér­stak­lega eftir að Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) gaf það út á síð­asta ári að vís­bend­ingar væru um að efnið valdi krabba­meini hjá mönnum. 

Rann­sóknin var unnin á við­ur­kenndri rann­sókn­ar­stofu að beiðni sam­tak­anna Food Democracy Now, sem kalla nú á eftir frek­ari rann­sóknum á áhrifum glýfosats á heilsu manna, en þær eru af skornum skammti. Þess má geta að Matvæla- og lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna (FDA) hóf að rann­saka magn glýfosats í mat­vælum í febr­úar síð­ast­liðnum, en fyrr í þess­ari viku til­kynnti stofn­unin að sú rann­sókn hefði verið sett á ís og óvíst hvenær henni verði haldið áfram. 

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar fannst mest af glýfosat í vin­sæla morg­un­korn­inu Cheerios, sem unnið er úr höfrum. Að sögn Ingi­bjargar Jóns­dóttur, sviðs­stjóra hjá Mat­væla­stofnun, jafn­gildir magnið sem fannst 1,1 mg/kg, en hámarks­gildi fyrir glýfosat í höfrum er 20 mg/kg. „Magnið sem fannst er því vel innan þeirra marka sem leyfð eru og því væri ekki til­efni til þess að taka vör­una af mark­aði vegna þess. Svo er annað mál hvort ástæða sé til að end­ur­skoða hámarks­gildin, og vinna við það er í gangi hjá Mat­væla­ör­ygg­is­stofnun Evrópu,“ segir hún. 

Ingi­björg segir vissu­lega áhyggju­efni að efnið sé að finna jafn víða og rann­sóknin gefur til kynna, sér­stak­lega í vörum sem við neytum jafnan í miklu magni. „Því miður er ekki verið að mæla efnið í mat­vælum hér á landi,“ segir hún, hvorki inn­flutt né inn­lend mat­væli. „Aðal­á­stæðan er sú að þetta er mjög erfið mæl­ing og þess vegna eru einnig mjög fáar mæl­ingar gerðar erlendis. Við höfum hins vegar verið að ýta á Matís ohf., sem fengu nýjan tækja­búnað árið 2014 í gegnum verk­efni sem hét Örugg mat­væli og var í tengslum við þýska rann­sókn­ar­stofu, og ég veit að þau hafa verið að vinna í því að mæla þetta. En það væri mjög gagn­legt og áhuga­vert ef það tæk­ist að bæta þessu við sem eitt af þeim efnum sem við fylgj­umst með í okkar eft­ir­liti.“  

Bann gæti ógnað matvælaöryggi

Íslandi ber sam­kvæmt EES-samn­ingnum að inn­leiða reglur ESB um plöntu­vernd­ar­vörur og í dag er glýfosat sam­þykkt til nota í plöntu­vernd­ar­vörum. Sú heim­ild var nýlega fram­lengd til 31. des­em­ber 2017. Hins vegar stendur nú yfir end­ur­skoðun á áhættu­mati fyrir glýfosat, meðal ann­ars vegna vís­bend­inga um að efnið sé skað­legt heilsu fólks. 

„Menn eru tví­stíg­andi varð­andi þetta efni, því er ekki að neita,“ segir Björn Gunn­laugs­son hjá Umhverf­is­stofnun í sam­tali við Stundina, sem seg­ist þó eiga von á að nið­ur­staða end­ur­skoð­unar Efna­stofn­unar Evrópu verði sú að efnið verði áfram leyft á mark­aði. „Þetta er lang­mest not­aða efnið í dag. Ef það yrði allt í einu bannað myndi horfa til vand­ræða í land­bún­aði í allri Evrópu, sér­stak­lega í korn­rækt. Menn nota efnið á haustin áður en þeir skera kornið og það drepur allt ill­gresi sem er í akrinum. Það þarf þá að þróa ein­hver önnur efni sem gera það sama því menn eru orðnir algjör­lega háðir þessu. Þetta teng­ist þannig líka mat­væla­ör­yggi.“

Björn bendir einnig á að Þýska­land hafi verið búið að áhættu­meta glýfosat og kom­ist að því að virka efnið væri ekki krabba­meins­vald­andi. „Það skiptir máli hvort þú ert að skoða þetta virka efni eða vöru sem inni­heldur efnið. Ef þú horfir aðeins á virka efnið sjálft þá er ekki hægt að sýna fram á með óyggj­andi hætti að það valdi krabba­meini. Þú verður þá að fram­leiða vöru sem inni­heldur ekki önnur auka­efni sem geta verið krabba­meins­vald­andi,“ segir Björn og bendir á að nýlega hafi annað efni, sem einnig hafi verið notað í plöntu­eitur, verið bannað. „Svo þarf að hafa í huga að ef við ætlum að skipta yfir í annað efni, sem er jafn­vel yngra á mark­aðnum og ekki eins vel þekkt, þá geti það alveg eins valdið krabba­meini eða öðrum nei­kvæðum áhrifum.“ 

Vegagerðin hættir að nota efnið

Glýfosat var upp­götvað árið 1970 af efna­fræð­ingi hjá banda­ríska land­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Monsanto. Efnið varð fljót­lega mjög vin­sælt og nú mest not­aða plöntu­eitur í heimi. Þá hefur Monsanto þróað erfða­breyttar glýfosat-ónæmar rækt­arplöntur á borð við soja og maís sem gerir stór­fellda notkun ill­gres­iseyðis mögu­lega á ökrum án þess að drepa rækt­arplönt­urnar. Notkun efn­is­ins hefur enda 15-fald­ast frá því ræktun erfða­breyttra glýfosat-þol­inna plantna hófst árið 1996, sem er þver­öf­ugt við það sem stuðn­ings­menn erfða­breyttrar rækt­unar héldu upp­haf­lega fram. Ein helstu rökin fyrir inn­leið­ingu erfða­breyttra plantna í land­bún­aði var að slík ræktun myndi minnka þörf­ina fyrir plöntu­varn­ar­efnum, en raunin er allt önnur, eins og segir í nýlegri grein í Neyt­enda­blað­inu.

Monsanto fram­leiðir plöntu­eitrið Roundup, en það komst í umræð­una hér á landi árið 2014 eftir að fréttir bár­ust af því að Vega­gerðin not­aði efnið til að eyða gróðri í veg­köntum. Þess má geta að Vega­gerðin gaf það út á síð­asta ári að hún stefni að því að draga úr og hætta alveg notkun á Roundup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár