„Við erum virkilega þakklátir fyrir ykkur!“

Gleði­bylgja ríður yfir Ísland vegna sögu­legs árang­urs karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu.

„Við erum virkilega þakklátir fyrir ykkur!“

„Við erum virki­lega þakk­látir fyrir ykkur,“ sagði Aron Einar Gunn­ar­son lands­liðs­fyr­ir­liði á Ing­ólfs­torgi, þar sem mann­fjöldi fagn­aði því að karla­lands­lið Íslands spilar á stór­móti í knatt­spyrnu í fyrsta sinn.

„Ég fokk­ing elska þig,“ heyrð­ist áhorf­andi hrópa til baka.

Karla­lands­lið Íslands spilar á Evr­ópu­meist­ara­móti lands­liða í knatt­spyrnu sem hefst 10. júní á næsta ári, eftir 0 - 0 jafn­tefli við Kasakstan á Laug­ar­dals­velli.

Þetta er í fyrsta skipti sem íslenska karla­lands­liðið spilar á stór­móti, en liðið varð naum­lega af sæti á Heims­meist­ara­mót­inu á síð­asta ári eftir tap gegn Króatíu í seinni umspils­leik.

Fögn­uð­ur­inn vegna tíð­ind­anna hefur yfir­tekið sam­fé­lags­miðla og fjöl­miðla. Sig­ur­há­tíð á Ing­ólfs­torgi í mið­borg Reykja­víkur er haldin í kvöld.

Forseti Íslands sagði í sam­tali við mbl.is í kvöld að það væri „stór­kost­legt“ að vera Íslend­ingur í dag. „Þetta er ár­ang­ur svo margs í gegn­um árin og íþrótt­irn­ar hafa alltaf sam­einað þjóð­ina,“ sagði hann. 

„Nú sé ég eftir því að hafa ekki verið búinn að tryggja for­sæt­is­ráð­herra vald til að gefa öllum frí með skömmum fyr­ir­vara þegar til­efni er til.“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist sjá eftir að hafa ekki veitt sjálfum sér vald­heim­ildir til boð­unar á almennum frídegi. „Til ham­ingju með að upp­lifa ein­hvern stærsta dag íslenskrar-, ég meina evr­ópskrar-, íþrótta­sögu …til þessa! Nú sé ég eftir því að hafa ekki verið búinn að tryggja for­sæt­is­ráð­herra vald til að gefa öllum frí með skömmum fyr­ir­vara þegar til­efni er til. Reyndar sagði ég lands­liðs­strák­unum eftir leik­inn að allir veit­inga- og skemmti­staðir yrðu opnir fyrir þá í nótt eins lengi og þeir vildu. Eftir á að hyggja hafði ég form­lega séð lík­lega ekki vald til þess heldur ...en ég geri ekki ráð fyrir að neinn muni reyna að reka þá í hátt­inn.“

 

Svona er sig­ur­inn - svona er Ing­ólfs­torg - "var það ekki?"

Posted by Dagur B. Egg­erts­son on Sunday, Sept­em­ber 6, 2015

Fögn­uð­ur­inn hefur smit­ast út í frétta­miðla. Fyr­ir­sögn á frétta­vefnum Kjarn­anum var með óhefð­bundn­ara sniði, en hún var: „JÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!“

Yfir­lýs­ing frá KSÍ ein­kenn­ist af geðs­hrær­ingu: „Við erum enn smám saman að átta okkur á þessu en við erum víst búin að tryggja okkur sæti á loka­keppni EM í Frakk­landi næsta sumar. Leikmenn og allir sem koma að lands­lið­inum vilja byrja að þakka af auð­mýkt fyrir stór­kost­legan stuðn­ing í und­an­förnum leikjum og það eiga ALLIR sinn hlut í vel­gengi liðs­ins og sæt­inu í Frakk­landi. Við viljum sér­stak­lega þakka Stuðn­ings­sveitin Tólfan fyrir MAGNAÐAN stuðn­ing og við viljum sjá sem flesta á vell­inum kom­andi sumar í Frakk­landi. Þið eruð bestu stuðn­ings­menn í heimi! TAKK FYRIR ALLT og ÁFRAM ÍSLAND!“

Nú stendur yfir fögn­uður á Ing­ólfs­torgi með lands­liðs­mönn­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár