Gjafmildur smálánakóngur veitir Eurovision-skuldaaflausn

Fjöl­miðlar birta frétta­til­kynn­ingu frá Netgíró sem er í eigu Skorra Rafns Rafns­sonar. Hann hefur auðg­aðst á smá­lána­starf­semi og er Netgíró af svip­uðum toga. Hann hefur und­an­farið eign­ast fjölda minni fjöl­miðla ásamt bland.is og Skífunni.

Gjafmildur smálánakóngur veitir Eurovision-skuldaaflausn
Eigandi Móbergs Skorri Rafn Rafnsson er aðeins þrí­tugur að aldri en hann hefur hagn­ast á smá­lána­starf­semi.

Fyrr í dag var birt frétt, byggð á frétta­til­kynn­ingu, á bæði DV og Press­unni, þar sem greint var frá því að fyr­ir­tækið Netgíró myndi end­ur­greiða hund­rað ein­stak­lingum reikn­inga sína. Áður hafði fyr­ir­tækið lofað því að end­ur­greiða þús­und ein­stak­lingum reikn­inga sína ef Ísland ynni Eurovision, en þrátt fyrir að María Ólafs­dóttir hefði ekki kom­ist í úrslit ákvað fyr­ir­tækið að end­ur­greiða hund­rað ein­stak­lingum reikn­inga sína. Hér má svo sjá frétt Vísis fyrir tíu dögum sem er auk þess byggð á frétta­til­kynn­ingu.

Starf­semi Netgíró er í ætt við smá­lána­fyr­ir­tæki, enda hefur eig­andi félags­ins hagn­ast á slíkum rekstri. Netgíró er í eigu Móberg ehf. sem Skorri Rafn Rafnsson á svo meiri­hluta í. Skorri Rafn, sem varð nýverið þrí­tugur að aldri, komst í álnir með smá­lána­fyr­ir­tækið Hrað­pen­inga. Smá­lána­fyr­ir­tækið hefur ekki skilað árs­reikn­ingum frá árinu 2011 en óljóst er hver á það félag nákvæm­lega. Síð­ast­lið­inn febr­úar vís­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur frá máli gegn Hrað­pen­ingum á þeim grund­velli að félag stað­sett í Kýpur, Jumdon Micro Finance Ltd., ætti allt hlutafé í félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár