Gekk úr Sjálfstæðisflokknum og er nú óháður varabæjarfulltrúi

Karl Pétur Jónsson er full­trúi í skóla- og jafn­réttis­nefnd Sel­tjarn­ar­ness sam­kvæmt sam­komu­lagi við bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Um leið starfar hann sem aðstoð­ar­maður fyrir ráð­herra Við­reisnar.

Gekk úr Sjálfstæðisflokknum og er nú óháður varabæjarfulltrúi

Karl Pétur Jónsson, aðstoð­ar­maður Þor­steins Víglunds­sonar, félags­mála­ráð­herra og þing­manns Við­reisnar, gegnir enn trún­að­ar­störfum fyrir Sel­tjarn­ar­nesbæ eftir að hafa verið kjör­inn vara­bæj­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2014. Hann skráði sig úr Sjálf­stæð­is­flokknum í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga og gekk til liðs við Viðreisn. Í dag er hann óháður vara­bæj­ar­full­trúi á Sel­tjarn­ar­nesi en situr áfram í skóla­nefnd og jafn­réttis­nefnd bæj­ar­ins. „Meiri­hlut­inn á Sel­tjarn­ar­nesi sýndi mér með þessu traust, sem ég er einkar þakk­látur fyrir enda er starfið í þessum nefndum einkar gef­andi og skemmti­legt,“ segir Karl, aðspurður um málið, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt meiri­hluta sínum á Sel­tjarn­ar­nesi í síð­ustu bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. 

„Ég var kjör­inn vara­bæj­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn vorið 2014, en gekk úr flokknum síð­ast­liðið haust í aðdrag­anda kosn­inga og gekk til liðs við Viðreisn,“ segir Karl í svari við tölvu­pósti Stund­ar­innar. „Við þau tíma­mót bauðst ég til að gegna áfram skyldum mínum í skóla- og jafn­réttis­nefnd og var því boði tekið af hálfu leið­toga meiri­hlut­ans í bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­ness. Ég sit nú sem óháður vara­bæj­ar­full­trúi á Sel­tjarn­ar­nesi og full­trúi í þessum tveimur nefndum og mun gera það út kjör­tíma­bilið.“ Hann segir árangur í skóla­málum á Sel­tjarn­ar­nesi góðan, skól­inn sé í stöðugri fram­för og að honum standi sam­hentur hópur póli­tískra full­trúa, kenn­ara, for­eldra og barna. „Starf jafn­réttis­nefndar er einnig mik­il­vægt, en bær­inn hefur nýlokið við jafn­launa­út­tekt og end­ur­skoðun á jafn­rétt­is­á­ætlun bæj­ar­ins.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár