Gaf í skyn að mistök Alþingis yrðu látin bitna á eldri borgurum

Þegar Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, tal­aði fyrir því að rétt­indi líf­eyr­is­þega yrðu skert með aft­ur­virkum lögum sagð­ist hún ótt­ast að ellegar yrði ekki svig­rúm til frek­ari kjara­bóta fyrir elli­líf­eyr­is­þega í bráð, svo sem til hækk­unar frí­tekju­marks.

Gaf í skyn að mistök Alþingis yrðu látin bitna á eldri borgurum

Nichole Leigh Mosty, þing­kona Bjartrar fram­tíðar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, sagði í umræðum um breyt­ingar á almanna­trygg­inga­lögum fyrr í vik­unni að ef mis­tök síð­asta þings yrðu ekki leið­rétt gæti það orðið til þess að ekki yrði fjár­hags­legt svig­rúm til að bæta kjör eldri borg­ara á næst­unni, svo sem með því að halda áfram að draga úr tekju­skerð­ingum vegna atvinnu­tekna. Þannig gaf hún í skyn að ef ekki næð­ist sam­staða um að breyta almanna­trygg­inga­lögum með aft­ur­virkum hætti yrðu mis­tök lög­gjafans látin bitna sér­stak­lega á lífs­kjörum líf­eyr­is­þega á næstu árum. 

Eins og Stundin hefur áður fjallað um sam­þykkti Alþingi aft­ur­virkar breyt­ingar á almanna­trygg­inga­lögum á mánu­dag sem fela í sér skerð­ingu á fimm millj­arða rétt­indum sem elli­líf­eyr­is­þegar öðl­uð­ust í jan­úar og febr­úar vegna mis­taka sem urðu við laga­setn­ingu síð­asta haust. Hefur for­maður vel­ferð­ar­nefndar við­ur­kennt að mis­tökin hafi skapað líf­eyr­is­þegum rétt­indi, en mis­tökin ollu því að sam­kvæmt laga­bók­stafnum hefðu tekjur úr líf­eyr­is­sjóðum ekki átt að gilda til skerð­ingar á elli­líf­eyri þegar ætl­unin var að þetta ætti ein­vörð­un­ugu við um útreikn­ing örorku­líf­eyris. Í jan­úar og febr­úar fór Trygg­inga­stofnun eftir vilja lög­gjafans en ekki laga­bók­stafnum, en rétt fram­kvæmd lag­anna hefði kostað hið opin­bera um 5 millj­arða króna á tíma­bil­inu. 

Þegar rætt var um málið í fyrstu og annarri umræðu vöktu Píratar athygli á því að laga­breyt­ingin gengi gegn grunn­reglu íslensks rétt­ar­fars um bann við aft­ur­virkni laga. Ekki væri hægt að ætl­ast til þess að fólk rýndi í lög­skýr­ing­ar­gögn til að þekkja raun­veru­leg rétt­indi sín. Því væri eðli­leg­ast að ákvæði um aft­ur­virkni lag­anna yrðu fjar­lægð. Þingmenn Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins voru ann­arrar skoð­unar og sam­þykktu frum­varp meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar óbreytt.

Í umræðum um málið á mánu­dag­inn hvatti Nichole Leigh Mosty, þing­maður Bjartrar fram­tíðar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar, til þess að lögin yrðu sam­þykkt og látin gilda aft­ur­virkt. Hún lagði áherslu á að enn sem komið er hefði eng­inn orðið fyrir tjóni vegna mis­tak­anna sem urðu við breyt­ing­arnar á almanna­trygg­inga­lögum. Hins vegar gæti orðið tjón ef frum­varp meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar yrði ekki sam­þykkt.

„Hér hefur ekki orðið tjón. Tjónið gæti hins vegar mynd­ast þegar mis­tök sem gerð voru við breyt­ingar á lög­unum verða ekki leið­rétt og ég er hrædd um að þá verði ekki fjár­hags­legt svig­rúm til að halda áfram að vinna í því að hækka líf­eyr­is­aldur í áföngum og hækka frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna þannig að eldra fólk geti nýtt starfs­getu sína og reynslu sam­fé­lag­inu til heilla,“ sagði Nichole. „Áhættan sem við sitjum uppi með og sú ábyrgð sem hvílir á okkar öxlum vegna þess­arar aft­ur­virkni eru 5 millj­arðar, 5 millj­arðar króna sem duga fyrir alls konar verk­efnum sem við þurfum að sinna í vel­ferð­ar­kerf­inu og í ráðu­neyt­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár