„Gætum við sagt við einstakling sem verður fyrir kynferðisofbeldi, píkan þín sagði já þótt heilinn segði nei?“

Kristín Jóns­dóttir birti grein á Knúz í morgun þar sem hún deilir hart á erindi Sigríðar Daggar Arn­ar­dóttur um klám. Þar sagði hún meðal ann­ars að konur ættu oft erfitt með að við­ur­kenna að þær njóti þess að horfa á klám, en „pík­an var bara: „Loks­ins fæ ég að horfa á kyn­líf og hafa gam­an af því“.“

„Gætum við sagt við einstakling sem verður fyrir kynferðisofbeldi, píkan þín sagði já þótt heilinn segði nei?“

„Þessi kross­ferð hennar til að gera klám að ein­hverju jákvæðu er virki­lega óþægi­leg í hugum margra, meðal ann­ars und­ir­rit­aðrar. Það er ein­hvern veg­inn alveg hrika­lega ein­feldn­ings­legt að nota frjáls­hyggju­kenn­ingu um brauð­mola í tengslum við mark­aðs­fyr­ir­bærið klám. Kaupum bara gott klám og þá lag­ast allt? Er það virki­lega svo ein­falt?”

Þetta skrifar Kristín Jóns­dóttir í grein sem birt­ist á Knúz í morgun, þar sem hún svarar erindi sem kyn­fræð­ing­ur­inn Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir var með á mál­þingi um kyn­hegðun, klám­væð­ingu og jafn­rétt­is­bar­áttu ungs fólks.

Mál­þingið var haldið á föstu­dag af nem­endum í við­burða- og verk­efna­stjórnun á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands undir yfir­skrift­inni: „Ef þú ekki tott­ar, þú dag­ar upp og drepst!“

Ábyrgir neytendur 

Þar fjall­aði Sigríður Dögg um klám og lýsti áhyggjum sínum af því hvernig talað er um klám og skömm búin til hjá þeim sem nota klám. Mik­il­væg­ara væri að skapa með­vit­aða og ábyrga neyt­endur, sem styðja fólk sem gerir gott klám og borga fyrir það. „Ekki er hægt að setja allt klám und­ir sama hatt og er til klám þar sem fólk fær rétt greitt og tek­ur þátt á sín­um for­send­um og hef­ur stjórn á aðstæð­unum,“ sagði hún.

Þá sagði hún að 95% af hefð­bundnu klámi væri drasl. „Rétt eins og 95% af mat­væl­um eða 95% af fatn­aði er drasl sem er fram­leitt við lé­leg­ar aðstæður af fólki á lé­leg­um laun­um. Við verðum mjög „hister­ísk“ yfir klámi en lokuð fyr­ir öðru,“ sagði hún og bætti við að fólk væri ekki al­mennt að setja spurn­inga­merki við vör­ur frá H&M, en mbl.is fjall­aði ítar­lega um erindi hennar. 

„Rétt eins og 95% af mat­væl­um eða 95% af fatn­aði er drasl sem er fram­leitt við lé­leg­ar aðstæður af fólki á lé­leg­um laun­um.“

Skilaboðin sem klámið sendir 

„Sigríður Dögg hlýtur að geta svarað og skýrt betur þessar óljósu kenn­ingar sínar um „vandað“ klám sem við eigum að styrkja mark­aðs­lega með því að vera til­búin til að borga fyrir það og jafn­framt tekið ein­hvers­konar efn­is­lega og fræði­lega afstöðu til þeirra 95% af mark­aðnum sem hún kallar „drasl“. Því þessi 95% eru það klám sem til dæmis er aðgengi­legt börnum,“ skrifar Kristín í grein­inni sem birt­ist á Knúz í morgun. Hún var ekki hrifin af mál­flutn­ingi Sigríðar Daggar og segir að margar spurn­ingar hafi kviknað.  

„Hvað á Sigríður Dögg við þegar hún talar um „gott klám“ sem hægt væri að kaupa eins og vand­aðar flíkur?“ spyr Kristín. „Og hvað er það þá sem er væri svo gott? Því klám­væð­ing­ar­á­hyggjur byggj­ast alls ekki ein­göngu á mansal­inu, mis­notkun á fíklum eða slíkum ósóma. Áhyggj­urnar bein­ast einnig að skila­boðum sem klámið sendir neyt­endum.“

Þá veltir hún því fyrir sér hvort gall­inn við mynd­skeið þar sem tveir eða fleiri karl­menn ham­ast kyn­ferð­is­lega á ung­lings­stúlku sé „drasl sem er fram­leitt við lélegar aðstæður“. „Ef allir fá vel borgað, eru í stétt­ar­fé­lagi og fá matar- og hvíld­ar­tíma og myndefnið er tækni­lega vandað og fair trade-stimplað áður en það fer í sölu, er þá þar með sagt allt í ljóm­andi lagi með þessi skila­boð?“ spyr Kristín. 

„Gætum við sagt við ein­stak­ling sem verður fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, píkan þín sagði já þótt heil­inn segði nei?“

Píkan þín sagði já

Hægt er að lesa grein Krist­ínar í heild sinni hér: Vandað klám – fyrir mig og börnin mín? en þar rekur Kristín erindi Sigríðar Daggar og staldrar að lokum við punkt sem Sigríður Dögg setti fram á mál­þing­inu um að konur ættu oft erfitt með að við­ur­kenna að þær njóti þess að horfa á klám en sam­kvæmt rann­sókn hefði komið í ljós að kyn­færin hefðu örvast við áhorfið. 

„Pík­an var bara: „Loks­ins fæ ég að horfa á kyn­líf og hafa gam­an af því“,“ sagði Sig­ríður hlæj­andi. „En heil­inn er bara: „Nei ekki séns“.“

Kristín segir þessi orð fylla hana van­mætti og bendir á að fólk sem verði fyrir kyn­ferð­is­of­beldi geti fundið fyrir lík­am­legri svörun, þótt hug­ur­inn fylgi ekki með. „Gætum við sagt við ein­stak­ling sem verður fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, píkan þín sagði já þótt heil­inn segði nei? Hvað merkir það? Að þú vildir það þá í raun?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár