Fyrrverandi landlæknir: „Aukin tilhneiging til að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu“

Ólafur Ólafsson, fyrr­ver­andi land­læknir, varar við því að gróða­fyr­ir­tækjum sé hleypt að rekstr­inum

Fyrrverandi landlæknir: „Aukin tilhneiging til að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu“

Ólafur Ólafsson, fyrr­ver­andi land­læknir, lýsir áhyggjum af síauk­inni einka­væð­ingu íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu í við­tali sem birt­ist í febr­ú­ar­hefti Lækna­blaðs­ins. „Það virð­ist sem aukin til­hneig­ing sé til þess að einka­væða sífellt stærri hluta af kerf­inu og draga sam­hliða veru­lega úr opin­berri fjár­mögnun þess,“ segir hann.

Hann bendir sér­stak­lega á að reynsla Breta af einka­væð­ingu hluta heil­brigð­is­þjón­ust­unnar sé slæm. „Í kjöl­far verk­taka­samn­inga við lækna árið 1991 í Bret­landi var ekki numið staðar. Veru­legar breyt­ingar urðu á sam­fé­lags­legum rekstri heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og við tók einka­rekstur og að hluta til einka­væddur rekstur. Mörg opin­ber sjúkra­hús eru nú einka­rekin og taka við einka­fjár­magni frá hlut­höfum sem mark­aðsvæða stofn­anir og vilja eðli­lega græða á rekstr­inum. Hagn­að­ur­inn fer yfir­leitt út úr grein­inni,“ segir hann og bætir við: 

„Hagn­að­ar­sjón­ar­miðin valda því að frekar eru valdir „auð­veldir“ sjúk­lingar til með­ferðar en síður erf­iðir eða þungir sjúk­lingar vegna ald­urs eða lang­vinnra sjúk­dóma. Sjúk­lingum er mis­munað og ójafn­ræði skap­ast. Stjórn­un­ar­kostn­aður hefur tvö­fald­ast og færst meira í hendur hlut­haf­anna. Svipuð þróun hefur orðið í Svíþjóð eftir 2008 og sam­kvæmt skýrslum sænsku rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar fyrir árið 2015 hafa jákvæðar breyt­ingar á heilsu­farsár­angri enn ekki komið fram.“ 

Ólafur segir að svo virð­ist sem íslensk stjórn­völd skorti algjör­lega rök­stuðn­ing fyrir því að breyta frekar rekstr­ar­fyr­ir­komu­lagi heil­brigð­is­þjón­ust­unnar nema gert sé ráð fyrir því að hið opin­bera verði með­stjórn­andi í rekstr­inum. Það sé óráð að hleypa gróða­fyr­ir­tækjum að rekstr­inum líkt og gert hefur verið í Bret­landi.

Stór ákvörðun á borði Óttars

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum stendur Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra frammi fyrir því að ákveða hvort einka­fyr­ir­tækið Klíníkin fái að opna legu­deild fyrir sjúk­linga í Ármúla.

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, hefur lýst því yfir að slíkt kynni að draga úr getu spít­al­ans til að rækja hlut­verk sitt. Haft var eftir honum í umfjöllun Frétta­tím­ans á dög­unum að hann hefði þá sér­stakar áhyggjur af að missa dýr­mæta starfs­krafta sér­hæfðs starfs­fólks til einka­fyr­ir­tæk­is­ins:

„Verði af þessum áformum mun það ekki ein­falda rekstur Land­spít­ala, eins og ég sé fram haldið, heldur flækja hann. Framlag einka­rekstrar sem þessa er tak­mark­aður fyrir heild­ina enda þungi þeirra í ein­fald­ari aðgerðum með mikla fram­legð, sem er hefð­bundin rjóma­fleyt­ing. Afleið­ingin verður sú að grafið verður undan fámennri en mik­il­vægri sér­grein, sem sinnir sér­hæfðum hópi sjúk­linga á Land­spít­ala. Flóknari aðgerðir þyrftu áfram að vera á Land­spít­ala, en sjúk­lingar sem á slíkum aðgerðum þurfa að halda munu líða fyrir það að bækl­un­ar­sér­greinin væri orðin miklu veik­ari á spít­al­anum. Afleið­ing­arnar yrðu mjög alvar­legar, út frá öllum mæli­kvörðum, öðrum en gróða við­kom­andi heil­brigð­is­starfs­manna. Auðvitað gæti þetta orðið þeim til hags­bóta sem ein­fald­ari þjón­ustu þurfa og bíða hennar, en þá þjón­ustu getur spít­al­inn veitt, fái hann til þess mögu­leika.“

Óttarr Proppé hefur ekki gert upp hug sinn ef marka má svör hans á Alþingi en þó sagt að engar ákvarð­anir um grund­vall­ar­breyt­ingar á rekstr­ar­formi heil­brigð­is­þjón­ust­unnar verði teknar án víð­tæks sam­ráðs.

Stundin hefur fjallað umtals­vert um einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu, meðal ann­ars um fyr­ir­tækið Klíník­ina og arð­greiðslur heil­brigð­is­fyr­ir­tækja.

Á lista Láns­trausts yfir arð­bær­ustu fyr­ir­tæki lands­ins miðað við hagnað sem hlut­fall af eigin fé er að finna þrjú slík fyr­ir­tæki. Arð­greiðslur úr tveimur þeirra nema mörg hund­ruð millj­ónum, en starf­semin er fjár­mögnuð að hluta til af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár