Félag í eigu Kjartans Gunnarssonar hlýtur Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar

Almenna bóka­fé­lagið og Sigríður Andersen þing­kona hljóta Frels­is­verð­launin í ár sem nefnd eru í höf­uðið á Kjartani Gunn­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins til 26 ára. Samband ungra sjálf­stæð­is­manna veitir verð­launin en Kjartan kemur hvergi nálægt vali á verð­launa­höfum.

Félag í eigu Kjartans Gunnarssonar hlýtur Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar

Sigríður Ást­hildur Andersen, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Almenna bóka­fé­lagið hljóta Frels­is­verð­laun Kjartans Gunn­ars­sonar í ár. 

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna veitir verð­launin einum ein­stak­lingi og einum lög­að­ila á hverju ári en verð­launin eru nefnd í höf­uðið á fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins til 26 ára og banka­ráðs­manni í Lands­bank­anum. Er þannig leit­ast við að heiðra störf Kjartans í þágu frjáls­hyggju á Íslandi. Svo skemmti­lega vill til að Kjartan Gunn­ars­son er sjálfur hlut­hafi í Almenna bóka­fé­lag­inu, eða BF-útgáfu ehf, sem er annar verð­launa­haf­anna að þessu sinni.

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna rök­styður valið á verð­launa­höfum í frétta­til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í dag. Fram kemur að Sig­ríður And­er­sen hljóti verð­laun­in fyr­ir ára­langa bar­áttu sína fyr­ir frelsi ein­stak­lings­ins til at­hafna og við­skipta. Hún hafi skrifað fjölda pistla og blaða­greina sem hafi haft góð áhrif á op­in­bera umræðu og hvatt til minni rík­is­af­skipta. Sigríður sé „öfl­ugur málsvari frels­is­ins, óháð því hvort mál­stað­ur­inn telst vin­sæll eða óvin­sæll“.

Um Almenna bóka­fé­lagið segir í til­kynn­ing­unni: „Áhersla bóka­fé­lags­ins hef­ur frá fyrstu tíð verið sú að gefa út vand­aðar bæk­ur á góðu máli. Hef­ur fé­lagið í því skyni látið þýða fjölda bóka og rita yfir á ís­lensku sem auð­velda les­end­um að afla sér þekk­ing­ar á sviði frels­is og sam­fé­lags­mála. Þá hef­ur fé­lagið einnig staðið fyr­ir út­gáfu bóka um ýmis álita­efni sam­tím­ans, svo sem Ices­a­ve-málið og bús­á­halda­bylt­ing­una.“

Almenna bóka­fé­lagið, eða BF-útgáfa ehf., er að mestu í eigu þriggja aðila sam­kvæmt nýjasta árs­reikn­ingi félags­ins. 

Öld ehf., félag Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, stjórn­mála­fræði­pró­fess­ors, á helm­ings­hlut, Baldur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri á 25 pró­senta hlut og Kjartan Gunn­ars­son á 20 pró­senta hlut í útgáfu­fé­lag­inu.

Eftir því sem Stundin kemst næst er þetta í fyrsta skiptið sem fyr­ir­tæki í eigu Kjartans Gunn­ars­sonar hlýtur Frels­is­verð­laun Kjartans Gunn­ars­sonar. Tekið skal fram, til að fyr­ir­byggja hvers kyns mis­skiln­ing, að Kjartan Gunn­ars­son hefur engin áhrif á það hver hlýtur verð­launin hverju sinni.

Verð­launin verða veitt klukkan 17:00 í dag við hátíð­lega athöfn í Valhöll. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár