Fræðimaðurinn sigraði frambjóðanda flokksins

Í for­seta­kosn­ing­unum árið 1968 tók­ust á fræði­mað­ur­inn Kristján Eldjárn og stjórn­mála­skör­ung­ur­inn Gunnar Thorodd­sen. Kristján sigr­aði með yfir­burðum.

Fræðimaðurinn sigraði frambjóðanda flokksins
Stór­sigur Kristján Eldjárn vann stór­sigur í kosn­ing­unum árið 1968.

Í for­seta­kosn­ing­unum árið 1968 voru hörð átök á milli fram­bjóð­end­anna Krist­jáns Eldjárns þjóð­minja­varðar og Gunnars Thorodd­sen, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, borg­ar­stjóra í Reykja­vík og eins af ráða­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þau nýmæli urðu skömmu fyrir kosn­ingar að fram­bjóð­end­urnir tveir mættu í sjón­varp til að svara spurn­ingum.

Þótt harkan í bar­átt­unni væri ekki mikið opin­ber þá skipt­ist sam­fé­lagið í fylk­ingar líkt og nú ger­ist. Fræði­mað­ur­inn Kristján fór gegn flokks­mann­inum Gunnari Thorodd­sen. Hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins fylgdi Gunnari af festu. En svo voru aðrir sjálf­stæð­is­menn sem höfn­uðu því að gera emb­ætti for­seta Íslands póli­tískt. Flokk­ur­inn var því klof­inn um málið.

Tengdasonur forsetans

Gunnar var höfð­ing­legur í fram­göngu og kom­inn af miklum valda­ættum. Hann var yngsti maður sem hafði tekið sæti á Alþingi Íslend­inga, þá 25 ára. Þegar hann bauð sig fram til emb­ættis for­seta Íslands var hann 57 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár