Einungis 2,9 prósent landsmanna horfðu á fyrsta þátt Ísland Today, spjallþátt Jóns Gnarr, föstudaginn 15. janúar síðastliðinn. Það er talsvert minna áhorf en Ísland í dag fékk alla þá viku en til samanburðar horfðu 8,1 prósent landsmanna á þáttinn daginn áður. Þetta kemur fram í tölum Gallup um áhorf á Ísland í dag og Kastljós. Í þessari sömu viku var sýnt viðtal við Kvíabryggjufanganna Ólaf Ólafsson, Magnús Guðmundsson og Sigurð Einarsson sem vakti mikla athygli. Sá þáttur fékk 15,1 prósent áhorf. Vert er að taka fram að þetta sama föstudagskvöld var landsleikur Íslands gegn Noregi í handbolta sýndur á RÚV. Þeim leik var þó lokið þegar þáttur Jóns byrjaði.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir