Forsætisráðherra gekk út úr viðtali og reyndi að stöðva birtingu þess

„Alveg fyrir neðan allar hellur,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra þegar hann gekk út úr við­tali eftir að hafa verið stað­inn að ósann­indum. Hann reyndi að stöðva birt­ingu við­tals sem sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman tók við hann. Hann hefur síðan neitað að svara Rík­is­út­varp­inu.

Forsætisráðherra gekk út úr viðtali og reyndi að stöðva birtingu þess
Gengur út Sig­mundur sagði ósatt og sést hér ganga út með orð­unum: „Alveg fyrir neðan allar hellur.“ Mynd: skjáskot/ruv

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var stað­inn að ósann­indum í við­tali við sænska blaða­mann­inn Sven Bergman sem birt var í kvöld, og gekk út úr við­tal­inu.

Viðtalið var sýnt í sér­stökum þætti Kast­ljóss, Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar og Aðal­steins Kjart­ans­sonar um eignir íslenskra stjórn­mála­manna í skatta­skjólum. Í þætt­inum eru birt gögn sem eru hluti af alþjóð­legum leka gagna úr skatta­skjólum og hafa augu umheims­ins ekki síst beinst að Íslandi og Rúss­landi vegna þess. Í við­tal­inu neit­aði Sig­mundur upp­haf­lega að tengj­ast aflands­fé­lagi, en eftir að hann hafði verið stað­inn að ósann­indum gekk hann út með orð­unum: „Alveg fyrir neðan allar hellur.“

„For­sæt­is­ráð­herra verður að geta svarað óþægi­legum spurn­ingum“

„For­sæt­is­ráð­herra verður að geta svarað óþægi­legum spurn­ingum,“ sagði Bergman í rök­stuðn­ingi sínum fyrir því að við­kvæm­asta hluta við­tals­ins hafi ekki verið stungið undir stól.

Sig­mundur Davíð gagn­rýndi Rík­is­út­varpið í blogg­færslu í dag. Hann sagði að dreif­ing óhróð­urs um sig erlendis væri „grund­völlur að nýrri útrás“ og kvart­aði undan þeirri áherslu að birta þátt­inn klukkan 18 í dag. „Nú liggur svo á að þátt­ur­inn mun ryðja úr vegi öðrum þætti sem gerður hefur verið að póli­tískum áróð­urs­þætti í seinni tíð, Stund­inni okkar.“

Myndband: Lára Hanna Ein­ars­dóttir

Gekk út úr viðtalinu

Sven Bergman hjá Uppdrag granskning tók við­tal við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í ráð­herra­bú­staðnum þann 11. mars síð­ast­lið­inn. Eftir að hafa spurt Sigmund Davíð út í ástæður þess að íslenska ríkið ákvað að kaupa gögn um Íslend­inga sem tengj­ast aflands­fé­lögum í skatta­skjólum og skoð­anir hans á slíkum gjörn­ingum spurði hann hvort hann hefði sjálfur tengst slíkum félögum. Sig­mundur neit­aði. Hér eru orð­rétt sam­skipti þeirra: 

Sven Bergman: En hvað með þig, herra for­sæt­is­ráð­herra? Hefur þú eða hefur þú sjálfur haft ein­hver tengsl við aflands­fé­lag?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son: Ég? Nei. Nú… Íslensk fyr­ir­tæki, og ég hef stafað hjá íslenskum fyr­ir­tækjum, höfðu tengsl við aflands­fé­lög og meira að segja.. Hvað heitir það nú, verka­lýðs­fé­lögin… Svo að það hefði verið í gegnum slíkt fyr­ir­komu­lag en ég hef ætíð gefið upp allar mínar eignir og fjöl­skyldu minnar til skatts­ins svo að það hefur aldrei verið svo að eigur mínar séu faldar nokk­urs staðar. Þetta er óvenju­leg spurn­ing að spyrja íslenskan stjórn­mála­mann um. Það er eins og verið sé að ásaka mann um eitt­hvað. En ég get stað­fest það að ég hef aldrei leynt neinum eigna minna. 

Sven Bergman: Afsakaðu ókurt­eis­ina, ég vil ekki vera ókurt­eis. Ég vildi bara spyrja per­sónu­legrar spurn­ingar um hvort þú hefðir nokkur sinni sjálfur haft tengsl við aflands­fé­lag.    

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son: Eins og ég sagði þá hafa eignir mínar ætíð verið uppi á borðum. 

Sig­mundur var síðan spurður út í félagið Wintris, sem er í eigu eig­in­konu hans. Sven bauð svo kollega sínum, Jóhann­esi Kr. Krist­jáns­syni, að taka við við­tal­inu, þar sem hann ætti auð­veld­ara með að spyrja út í ákveðna þætti máls­ins á íslensku. Sig­mundur Davíð neit­aði að ræða við Jóhannes og sagð­ist geta veitt honum þetta við­tal síðar. Sig­mundur var stað­inn að ósann­indum og lauk við­tal­inu með því að Sig­mundur Davíð gekk út. 

Sven segir að starfs­fólk for­sæt­is­ráð­herra hafi haft sam­band og beðið um að sá hluti við­tals­ins þar sem hann stendur upp og gengur út verði ekki birtur. 

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir svar­aði Sig­mundur Davíð ekki frek­ari fyr­ir­spurnum blaða­manna og veitti aldrei við­talið sem hann lof­aði á staðnum. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs hafi hins vegar haft sam­band við blaða­menn­ina og þeim boð­inn fundur sem ekki mætti vitna í opin­ber­lega. Sá fundur var afþakk­aður.

Veitir RÚV ekki viðtal

Fram hefur komið að Sig­mundur Davíð hefur ítrekað neitað að veita frétta­stofu RÚV við­tal vegna máls­ins. Bogi Ágústs­son, frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður á RÚV, var til að mynda  mjög afdrátt­ar­laus í við­tali í Vikunni hjá Gísla Marteini Bald­urs­syni á föstu­dag. „Hvernig hefði það gengið í Bret­landi ef eitt­hvað svipað hefði komið fyrir David Cameron og hann hefði neitað BBC um við­tal í allan þennan tíma sem Sig­mundur Davíð hefur gert? Við höfum á hverjum ein­asta degi reynt að ná í hann og við fáum alltaf afsvar. Nú á Sig­mundur Davíð, sem ég réði nú til starfa á frétta­stof­unni fyrir sextán árum og var við­loð­andi þetta fyr­ir­tæki meira og minna í sjö ár, að vita að við erum ekki til­gangs­frétta­menn. Við erum ekki að þjóna einum eða neinum nema eig­endum okkar sem eru almenn­ingur í land­inu. Við erum ekki að þjóna póli­tískum öflum, ekki Evr­ópu­sam­band­inu, ekki hags­muna­sam­tökum, heldur almenn­ingi í land­inu. Við viljum að fólk fái upp­lýs­ing­arnar og þær séu lagðar á borðið. Svo getur fólk metið þær upp­lýs­ingar og tekið sína afstöðu,“ sagði Bogi. 

Sig­mundur útskýrði afstöðu sína gagn­vart RÚV að hluta til í blogg­færslu sinni í dag. Hann ber þungar sakir á frétta­stofu RÚV þar sem hann segir frétta­menn meðal ann­ars hafa hringt reglu­lega í þing­menn stjórn­ar­liðs­ins en að svör þeirra hafi aldrei verið birt þegar þau töld­ust jákvæð í hans garð eða rík­is­stjórn­ar­innar. Þá séu teknar út setn­ingar sem hægt sé að setja nei­kvætt yfir­bragð á og þær settar í nýtt sam­hengi. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að mér hefur þótt und­ar­legt að fylgj­ast með því með hvaða hætti RÚV hefur nálg­ast þetta mál. Umfjöll­unin öll hefur haft meira yfir­bragð þess að segja sögu eða hanna atburða­rás fremur en að greina frá stað­reyndum,“ skrifar hann. 

Áður hafa þing­menn­irnir Þor­steinn Sæmunds­son og Karl Garð­ars­son sagt frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins vera í póli­tískum her­leið­angri gegn for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn­inni. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leyndu tilvist Wintris og greiddu ekki skatta í samræmi við lög
FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár