Formaður bankaráðs Seðlabankans fjárhagslega tengdur bankanum

Þórunn Guð­munds­dóttir tók við sem for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands fyrr á þessu ári. Hún er einn eig­enda lög­manns­stof­unnar Lex en lög­menn þar hafa bæði starfað fyrir þrotabú og Seðla­bank­ann sjálfan.

Formaður bankaráðs Seðlabankans fjárhagslega tengdur bankanum
Formaður banka­ráðs Þórunn kom inn í banka­ráð fyrr á þessu ári í stað Ólafar Nordal.

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að kurr sé í sumum banka­ráðs­mönnum vegna sterkra tengsla for­manns banka­ráðs við lög­manns­stof­una Lex. For­mað­ur­inn, Þórunn Guð­munds­dóttir, er einn eig­enda lög­manns­stof­unnar og hefur hún starfað þar um ára­bil.

Þórunn var valin af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í starfið, en hann vann sjálfur á lög­manns­stof­unni á árunum 1999 til 2003. Hún kom inn í banka­ráðið í kjöl­far þess að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér ráð­herra­emb­ætti og Ólöf Nordal sagði sig úr banka­ráði Seðla­banka Íslands og tók við sem inn­an­rík­is­ráð­herra.

Í sam­tali við Stundina segir Þórunn það frá­leitt að hún muni van­virða lög­bundna skyldu sína sem banka­ráðs­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár