Fjölskyldunni gert að yfirgefa húsnæðið innan 10 daga

„Fyrir fimm manna fjöl­skyldu er ómögu­legt að finna hús­næði á svona skömmum tíma“

Lands­bank­inn krafð­ist þess í bréfi þann 1. júní að fimm manna fjöl­skylda í Hafn­ar­firði yfir­gæfi hús­næði sitt og skil­aði lyklunum til fulln­ustu­deildar bank­ans innan 10 daga. „Að öðrum kosti verður málið falið utan­að­kom­andi lög­fræð­ingi og kraf­ist útburðar án frek­ari við­var­ana,“ segir í bréfi frá bank­anum sem fjöl­skyldu­fað­ir­inn birti á Facebook og vakið hefur tals­verða athygli.

Í bréf­inu kemur fram að bank­inn hafi eign­ast fast­eign­ina þann 8. maí og óski eftir að íbúar rými eign­ina eigi síðar en 11. júní. „Takið eftir dag­setn­ing­unni á bréf­inu og þeim tíma sem fimm manna fjöl­skylda á að hafa til að kom­ast í annað hús­næði eins og leigu­mark­að­ur­inn er í dag,“ skrifar mað­ur­inn. Stundin hafði sam­band við hann og fékk að heyra for­sögu máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár