Fjölmargir Íslendingar féllu fyrir falskri viðvörun um innbrotsþjófa

Hita­veitu­menn­irnir sem varað var við á Facebook og á vef­síðu á net­inu eru ekki raun­veru­legir inn­brots­þjófar. 1.700 Íslend­ingar hafa deilt við­vörun og margir tekið hana alvar­lega.

Fjölmargir Íslendingar féllu fyrir falskri viðvörun um innbrotsþjófa
Varað við inn­brots­þjófum Margir trúðu því að um raun­veru­lega inn­brots­þjófa væri að ræða. Mynd: Facebook

Fjöl­margir Íslend­ingar hafa síð­ustu tvo daga deilt við­vörun um inn­brots­þjófa sem dul­búa sig sem starfs­menn frá hita­veit­unni til þess að fá aðgang að heim­ilum fólks. Mynd af mönn­unum tveimur er deilt með við­vör­un­inni:

„AÐVÖRUN þessir tveir aðilar eru að banka uppá hjá fólki og biðja um að lesa af hita­veitu mæl­unum ALLS EKKI HLEYPA ÞEIM INN þeir eru ekki frá hita­veit­unni endi­lega að deila !!!!!“

Aðvör­un­inni hefur verið deilt 1.700 sinnum á Facebook og hefur sam­hljóða frétt verið birt á vefnum Menn.is, þar sem Reyk­vík­ingar varaðir við því að hleypa þeim inn til sín.

Menn­irnir tveir eru hins vegar ekki inn­brots­þjófar, heldur aðal­per­són­urnar í kvik­mynd­inni Home Alone, eða Aleinn heima, sem var sýnd í Sjón­varp­inu síð­ast­liðið laug­ar­dags­kvöld. 

Undrast trúgirni fólks

Við­vör­uninÞröstur Njáls var­aði við inn­brots­þjófum sem þætt­ust vera frá hita­veit­unni.

Við­vör­unin var upp­haf­lega birt í gríni á Facebook-síðu Þrastar Njáls. Þröstur hafði horft á Home alone í Rík­is­sjón­varp­inu kvöldið áður og í kjöl­farið ákveðið að skrifa grín­færslu á Facebook. 

Hann undrað­ist við­brögðin. „Vá, var að fara yfir allar þessar deil­ingar og fólk er greini­lega ekki að fatta að þetta er the wet bandits úr Home alone,“ segir hann undir færsl­unni.

Engu að síður hefur fólk haldið áfram að deila við­vör­un­inni bæði á Facebook og svo munn­lega.

Þá birti vef­síðan Menn.is við­vör­un­ina og mynd­ina „til var­úðar“ og fékk yfir 1.600 deil­ingar á frétt­ina.

Frétt um inn­brots­þjóf­anaVefurinn Menn.is birti frétt um inn­brots­þjóf­ana og var­aði við því að hleypa þeim inn. Ekki kemur fram að um upp­logna frétt sé að ræða, en fréttin er sú vin­sælasta hjá vefnum.

Falskar fréttir breyta lýðræðinu

Falskar fréttir á Facebook hafa verið mikið í umræð­unni frá því að þær höfðu áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Mánuðina fyrir kosn­ingar var meiri virkni (e. enga­gement) við deil­ingar á fölskum fréttum um Hillary Clinton og Donald Trump en deil­ingar við­ur­kenndra frétta­miðla. Meðal fimm vin­sæl­ustu fölsku frétt­anna á Facebook var að Wikileaks hefði birt gögn sem sýndu að Hillary Clinton hefði selt vopn til ISIS, að Frans páfi hefði lýst yfir stuðn­ingi við Donald Trump og að alrík­is­lög­reglu­maður sem kom að lek­anum á gögnum úr tölvu­póstum Hillary Clinton hefði fund­ist lát­inn við grun­sam­legar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár