Fjöldauppsögn hjá Plain Vanilla: „Fyrirtæki með enga innkomu hlýtur að þurfa að fækka starfsmönnum“

Fjórtán manns var sagt upp störfum hjá tölvu­leikja­fram­leið­and­anum Plain Vanilla í dag. Upp­sagn­irnar koma í kjöl­far kaupa banda­ríska tölvu­leikja­fé­lags­ins Glu Mobile á stórum hlut í félag­inu. Starfs­menn tölvu­leikja­fé­lag­ins hafa orð á því á það félagið hafi verið að brenna pen­inga und­an­farin miss­eri.

Fjöldauppsögn hjá Plain Vanilla: „Fyrirtæki með enga innkomu hlýtur að þurfa að fækka starfsmönnum“

Fjórtán manns var sagt upp störfum hjá tölvu­leikja­fram­leið­and­anum Plain Vanilla í dag. Það er nærri tutt­ugu pró­sent allra starfs­manna félags­ins en áður voru starfs­menn um átta­tíu tals­ins. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar störf­uðu margir þeirra sem sagt var upp störfum í hinni svoköll­uðu content-deild, deild sem hélt utan um fram­leiðslu á spurn­ingum fyrir QuizUp leik­inn sjálfan. Að minnsta kosti fimm manns voru reknir úr þeirri deild og er það stór hluti deild­ar­innar.

Stundin hefur rætt við nokkra þeirra sem voru reknir í dag. Nær allir höfðu orð á því að upp­sögnin hafi ekki komið þeim á óvart. „Þetta kemur mér ekk­ert á óvart. Fyr­ir­tæki með enga inn­komu hlýtur að þurfa að fækka starfs­mönnum,“ segir einn fyrr­ver­andi starfs­maður Plain Vanilla. Tveir starfs­menn höfðu orð á því á það félagið hafi verið verið að brenna pen­inga und­an­farin miss­eri. „Það má orða það þannig að við höfum verið að kveikja í pen­ingum. Við erum búnir að vinna á þessu hlutafé til að fá ein­hverja pen­inga til baka,“ segir annar fyrr­ver­andi starfs­maður Plain Vanilla.

Ljóst er að upp­sagn­irnar tengj­ast kaupum banda­ríska tölvu­leikja­fé­lags­ins Glu Mobile á stórum hlut í Plain Vanilla. Samkvæmt frétt mbl.is er stefnt að sam­ein­ingu fyr­ir­tækj­anna á næstu 15 mán­uðum. „Þeir eru að reka fyr­ir­tæki með fullt af fólki og pen­ing­ur­inn klárað­ist fyrir ein­hverju síðan, eins og gengur og ger­ist. Það er alltaf verið að spyrja hvernig fyr­ir­tækið sé að græða pen­ing en það hefur ekki verið að gera það. Það er ekk­ert leynd­ar­mál. Nú er það þannig að það þarf að finna meira fjár­magn og það ger­ist í þessum iðn­aði að þú færð ekki jafn mikið fjár­magn og þarf til að keyra svona batt­erí með fullt af fólki,“ segir einn þeirra starfs­manna sem var rek­inn í dag.

Stundin greindi nýverið frá því að miklar vær­ingar hafi verið á meðal starfs­manna félags­ins. Starfs­menn höfðu óskað eftir að fá trún­að­ar­mann á vinnu­stað­inn en dregið var úr því af yfir­mönnum. Trún­að­ar­maður var þó kos­inn nýverið á vinnu­staðnum. Í þeirri frétt kom einnig fram að fjöldi starfs­manna væru hræddir við Gunnar Hólm­stein Guð­munds­son, rekstr­ar­stjóra félags­ins.

Síð­ast­lið­inn des­em­ber fjall­aði Stundin um fjár­hags­stöðu félags­ins en rekstr­ar­kostn­aður Plain Vanilla hefur verið gíf­ur­lega mik­ill, en hann nam rúm­lega tveimur millj­örðum króna á síð­ast­liðnum tveimur árum. Í fyrra voru rekstr­ar­tekj­urnar 845 millj­ónir króna en voru 222 millj­ónir króna árið þar áður. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið í fyrra en í fyrra komu nær allar tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, rúm­lega 873 millj­ónir króna, frá hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins erlendis.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í sein­ustu viku að launa­kostn­aður Plain Vanilla hafi numið 873 millj­ónum króna árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár