„Fjármálaráðherra sagði Alþingi ósatt“

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir mál Bene­dikts Jóhann­es­sonar grafal­var­legt og enn eitt dæmi van­virð­ingar gagn­vart Alþingi. Benedikt gaf Alþingi röng svör þegar hann var spurður um áhuga fjár­festa á Kefla­vík­ur­flug­velli en baðst afsök­unar á því opin­ber­lega þegar Stundin leit­aði við­bragða hjá honum við frétt um málið.

„Fjármálaráðherra sagði Alþingi ósatt“
Segir málið grafal­var­legt Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir mál Bene­dikts grafal­var­legt og enn eitt dæmið um það sem mér finnst vera lenska hjá núver­andi rík­is­stjórn; sumsé van­virð­ing gagn­vart Alþingi. Mynd: Pressphotos

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, er afar harð­orður í garð Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eftir að Benedikt ját­aði að hafa gefið Alþingi röng svör um áhuga fjár­festa á Kefla­vík­ur­flug­velli og sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við þá.

Líkt og Stundin greindi frá í morgun hefur Benedikt við­ur­kennt að hafa gefið óná­kvæm, jafn­vel röng, svör þegar hann var spurður út í áhuga fjár­festa á Kefla­vík­ur­flug­velli á Alþingi í síð­asta mán­uði. Benedikt átti sjálfur fund með fjár­festum tæpum tveimur mán­uðum áður en fyr­ir­spurnin var borin upp og í fram­hald­inu átti aðstoð­ar­maður hans annan fund með þeim, sama dag og fyr­ir­spurn var borin upp á Alþingi. Benedikt seg­ist ekki hafa vitað af fund­inum.

Benedikt greindi sjálfur frá mál­inu á Facebook í morgun eftir að Stundin hefði spurt hann um málið. 

„Málið er grafal­var­legt og enn eitt dæmið um það sem mér finnst vera lenska hjá núver­andi rík­is­stjórn; sumsé van­virð­ing gagn­vart Alþingi,“ skrifar Kolbeinn meðal ann­ars í pistli sem hann birti á Facebook síðu sinni rétt í þessu. Þá rifjar hann einnig upp þegar Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra fór með rangt mál á Alþingi um að hún hefði gefið nefnd um veit­ingu íviln­ana ákveðin til­mæli, og Stundin fjall­aði um. „Og líkt og Benedikt nú, taldi Björt enga ástæðu til að leið­rétta orð sín þar sem þau féllu; nefni­lega í þing­sal,“ segir Kolbeinn.

Þá gefur hann lítið fyrir útskýr­ingar Bene­dikts um að honum hafi ekki verið kunn­ugt um fund Gylfa Ólafs­sonar, aðstoð­ar­manns ráð­herra, með fjár­fest­unum, enda hafi miklar annir á síð­ustu dögum þings­ins. 

„En hvernig bregst ráð­herra síðan við þegar hann gerir sér grein fyrir því að hann hefur sagt þing­inu ósatt? Verðum við ekki að vænta þess að aðstoð­ar­mað­ur­inn hafi stokkið til og látið ráð­herra vita að svar hans hafi ekki verið alveg sann­leik­anum sam­kvæmt og m.a.s. hafi átt sér stað fundur sama dag og fyr­ir­spurnin kom fram?

„Hann þegir þunnu hljóði þar til Stundin hefur sam­band við hann og spyr hann út í málið.“

Einhver hefði nú haldið að full­trúi nýrra stjórn­mála mundi þá stíga strax fram, hringja jafn­vel í fyr­ir­spyrj­and­ann, kveða sér síðan hljóðs á þingi sem utan til að leið­rétta sjálfan sig. En ekki Benedikt. Hann þegir þunnu hljóði þar til Stundin hefur sam­band við hann og spyr hann út í málið. Þá setur hann fram status á Feisbúkk og biðst for­láts.

Afsök­un­ar­beiðnir verða að vera ein­lægar til að hægt sé að taka mark á þeim. Það að klóra sig út úr vand­ræðum af því að fjöl­mið­ill var að fara að koma upp um þig, er ekki ein­lægni. Það er yfir­klór.“

Hér að neðan er pistill Kolbeins í heild:

Nú hefur komið í ljós að Benedikt Jóhanes­son fjár­mála­ráð­herra sagði Alþingi ósatt þegar hann svar­aði fyr­ir­spurn vara­þing­manns Vinstri grænna, Óla Hall­dórs­sonar, um áhuga erlendra fjár­festa á kaupum á alþjóða­flug­stöð­inni í Keflavík. Stundin greinir frá þessu og orða­skipti þing­manns­ins og ráð­herr­ans má sjá hér.

Málið er grafal­var­legt og enn eitt dæmið um það sem mér finnst vera lenska hjá núver­andi rík­is­stjórn; sumsé van­virð­ing gagn­vart Alþingi. Skemmst er að minn­ast þess þegar Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra sagði Alþingi ósatt um að hún hefði gefið nefnd um veit­ingu íviln­ana ákveðin til­mæli. Það reynd­ist rangt, eins og Stundin greindi frá. Og líkt og Benedikt nú, taldi Björt enga ástæðu til að leið­rétta orð sín þar sem þau féllu; nefni­lega í þing­sal.

Það verða nægir um að rekja málið og fara ofan í saumana á ósann­indum Bene­dikts. Telji ein­hver að ég grípi of sterkt til orða með því að kalla þetta ósann­d­ini, þá vitna ég bara í ráð­herra sjálfan sem sagði á Feisbúkk: „Síðar hefur mér orðið ljóst að svar mitt var óná­kvæmt og jafn­vel rangt…“. Mig langar hins vegar að beina sjónum að við­brögðum og skýr­ingum ráð­herra.

Benedikt heldur því fram að hann hafi ein­fald­lega ekki vitað af því að aðstoð­ar­maður hans hefði fundað með fjár­festum vegna Kefla­vík­ur­flug­vallar. Ljótt er ef satt er, segi ég nú bara, og ráð­herra hlýtur að velta því fyrir sér hvort hann eigi að hafa fólk í vinnu sem situr á fundum um jafn stór mál­efni og þetta án þess að láta hann vita. Í hvers umboði fund­aði aðstoð­ar­mað­ur­inn með fjár­fest­unum? Sem ein­stak­ling­ur­inn Gylfi Ólafsson, eða sem aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra Íslands?

Möguleg sala á flug­vell­inum hefur verið mikið í umræð­unni, um þetta hefur verið rætt innan sem utan þings, en það virð­ist hafa farið algjör­lega fram­hjá fjár­mála­ráð­herra, sem ber hæfni hans til starfans reyndar ekki gott vitni.

Gefum ráð­herra orðið:

Þess má svo geta að þann 31. maí, sama dag og fyr­ir­spurnin var borin upp átti Gylfi Ólafsson aðstoð­ar­maður minn annan fund með þessum aðilum um sama efni. Um þetta vissi ég ekki þá, enda miklar annir á síð­ustu dögum þings­ins.

Annir á síð­ustu dögum þings­ins? Er það afsök­unin fyrir því að ráð­herra viti ekki um fundi með áhuga­sömum kaup­endum á flug­stöð­inni? Kannski þarf bara nýjan ráð­herra sem nær að halda betri yfir­sýn yfir verk­efni ráðu­neyt­is­ins.

En hvernig bregst ráð­herra síðan við þegar hann gerir sér grein fyrir því að hann hefur sagt þing­inu ósatt? Verðum við ekki að vænta þess að aðstoð­ar­mað­ur­inn hafi stokkið til og látið ráð­herra vita að svar hans hafi ekki verið alveg sann­leik­anum sam­kvæmt og m.a.s. hafi átt sér stað fundur sama dag og fyr­ir­spurnin kom fram?

Einhver hefði nú haldið að full­trúi nýrra stjórn­mála mundi þá stíga strax fram, hringja jafn­vel í fyr­ir­spyrj­and­ann, kveða sér síðan hljóðs á þingi sem utan til að leið­rétta sjálfan sig. En ekki Benedikt. Hann þegir þunnu hljóði þar til Stundin hefur sam­band við hann og spyr hann út í málið. Þá setur hann fram status á Feisbúkk og biðst for­láts.

Afsök­un­ar­beiðnir verða að vera ein­lægar til að hægt sé að taka mark á þeim. Það að klóra sig út úr vand­ræðum af því að fjöl­mið­ill var að fara að koma upp um þig, er ekki ein­lægni. Það er yfir­klór.

Fjár­mála­ráð­herra sagði Alþingi ósatt og ákvað svo að þegja yfir því þar til upp um hann komst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár