Falskur fiskur úr sjó

Þorskur kom á land sem ýsa eða aðrar teg­undir. Þýfið breytt­ist í var­an­lega eign.

Falskur  fiskur úr sjó

Saga kvóta­kerf­is­ins er mörkuð furðu­legum gjörn­ingum sem menn hefðu talið að gætu ekki átt sér stað í rétta­ríki. Fiski hefur verið landað í skjóli nætur, fram­hjá vigt. Ótal dæmi eru um að þorski hefur verið landað sem löngu, keilu, lýsu og stein­bít. Þannig var kom­ist fram­hjá kvóta með miklum ávinn­ingi þar sem kvóta­verðið var á köflum jafn­hátt því verði sem fæst fyrir fisk­inn á land kom­inn. 

Við upp­haf kvóta­kerf­is­ins var aðeins þorskur í kvóta. Þá stund­uðu nokkrar útgerðir það að landa þorski sem ýsu eða öðrum teg­undum. Þetta gerð­ist í höfnum sem í gríni voru kall­aðar frí­hafnir. Þá voru allir með í ráðum. Allt frá sjó­mönn­unum að vigt­ar­mann­inum og fisk­verkand­anum. Sumar hafnir stóðu öðrum framar í þessum efnum. Þar var gríð­ar­legt magn af þorski sem skipti um nafn með til­heyr­andi gróða fyrir þá sem stóðu að svindlinu. Í þeim þorpum sem áttu í hlut var gjarnan litið þannig á að það væri eðli­legt og sjálf­sagt að landa undir fölsku flaggi. Litið var á kvóta­kerfið sem óvin­veitt íbú­unum. Sá sem svindl­aði var eins­konar Hrói Höttur að berj­ast við fóget­ann í Nott­ing­ham. Þannig þögðu allir um brallið. Ævin­týra­legt magn af fiski fór bak­dyra­megin inn í fisk­vinnslur. Og svind­lið náði stundum alla leið til útlanda þegar ferskur fiskur var sendur út í gámum eða frystur fiskur fluttur beint út. Samráðið náði alla leið. 

Kvótinn fylgdi skipstjóranum 

Þegar fisk­teg­undir voru settar í kvóta var reiknað út frá veiði­reynslu und­an­far­inna þriggja ára. Kvóti í þorski var upp­haf­lega reikn­aður með þessum hætti þótt aðrar aðferðir væru einnig þekktar svo sem skip­stjóra­kvót­inn. Þar var um það að ræða að afla­sælir skip­stjórar sem höfðu skipt um skip á við­mið­un­ar­tím­anum fengu sama kvóta og á gamla skip­inu. Frægasta dæmið um þetta var þegar Þor­steinn Vil­helms­son hætti á

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár