Falskar meðferðir seldar í apótekum

Mörg dæmi eru um að apó­tek lands­ins selji með­ferðir sem ekki hefur verið sýnt fram á að virki, eða hefur verið sýnt fram á að virki ekki. Svanur Sig­ur­björns­son læknir greinir vörur sem seldar eru veikum.

Falskar meðferðir seldar í apótekum

Þegar gengið er inn í apó­tek Lyfju í Lág­múl­anum blasir við vænt­an­legum við­skipta­vini löng röð ýmissa fæðu­bót­ar­efna, vítamína og sumt er ekki hægt að kalla annað en kukl. Ekki tók langan tíma fyrir Svan að finna ýmsar vörur sem lof­uðu fram úr ermunum.
„Flest fæðu­bót­ar­efnin, sem eru til sölu í apó­tek­unum, eru með efnum sem hafa ein­hverja líf­efna­fræði­lega eig­in­leika og hafa þannig mögu­lega áhrif á ein­hver til­tekin efna­skipta­ferli í lík­am­anum, til dæmis líf­ræn efni úr plöntum sem geta haft áhrif á boð­efni í heil­anum. Efnin og áhrif þeirra á lík­amann eru mis­mikið rann­sökuð og það skiptir máli að það sem sagt er um ágæti þeirra á umbúð­unum fari ekki fram úr því sem vitn­is­burður rann­sókna segir til um. Sé um get­gátur um að ræða á að orða að þannig að það sé ljóst, en það vill loða við að of miklu sé lofað eða kynn­ing sett fram sem stað­reynd,“ segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár