„Einn best rekni ríkissjóður í Evrópu“ rekinn með halla í miðri uppsveiflu

Halli á rík­is­sjóði nam tæpum 6 millj­örðum króna í fyrra og verður enn meiri í ár ef litið er fram­hjá ein­skipt­is­greiðslum. Frá­far­andi rík­is­stjórn vék frá eigin fjár­mála­á­ætlun með tug­millj­arða útgjalda­skuld­bind­ingum rétt fyrir kosn­ingar sem munu að öllu óbreyttu koma fram í sam­svar­andi halla­rekstri á næsta ári.

„Einn best rekni ríkissjóður í Evrópu“ rekinn með halla í miðri uppsveiflu

Frá­far­andi rík­is­stjórn vék frá eigin rík­is­fjár­mála­á­ætlun með útgjalda­frekum laga­breyt­ingum og skuld­bind­ingum rétt fyrir kosn­ingar. Á þetta er bent í Pen­inga­mála­riti Seðla­bank­ans sem kom út í síð­ustu viku. 

Fram kemur að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi vikið frá sam­þykktri fjár­mála­á­ætlun sinni í tveimur veiga­miklum atriðum í lok kjör­tíma­bils­ins, ann­ars vegar með við­bót­ar­fjár­fest­ingum í sam­göngu­á­ætlun sinni og hins vegar með auknu fjár­magni til almanna­trygg­inga. Báðar aðgerð­irnar séu ófjár­magn­aðar, en um er að ræða tugi millj­arða sem munu valda því að rík­is­sjóður verður rek­inn með halla á næsta ári ef auk­inna tekna verður ekki aflað.

„Það voru sam­þykkt ýmis fjár­út­lát á síð­ustu vik­um þings­ins sem ekki var gert ráð fyr­ir í rík­is­fjár­mála­áætl­un. Það mun­ar ein­hverj­um tug­um millj­arða,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar í við­tali við Mbl.is í morgun. Þá var haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna á RÚV í gær, að staðan í rík­is­fjár­málum væri þrengri en áður hefði litið út fyrir. 

Í aðdrag­anda kosn­inga keyrði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á sterkri stöðu rík­is­sjóðs. Fullyrti Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, að Ísland væri með einn best rekna rík­is­sjóð í Evrópu. „Við erum lík­lega með einn best rekna rík­is­sjóð í Evrópu, það eru fá ríki með við­líka frum­jöfnuð og við,“ sagði hann í leið­togaum­ræðum á RÚV þann 4. októ­ber.

Í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans kemur hins vegar fram að halli á rík­is­sjóði nam tæpum 6 ma.kr. í fyrra eða sem nemur 0,3% af lands­fram­leiðslu og að sam­kvæmt grunn­spá séu horfur á að hall­inn verði enn meiri í ár þegar horft er fram­hjá ein­skipt­is­á­hrifum upp­gjörs slita­búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja á afkomu rík­is­sjóðs. Fullyrt er að slökun hafi verið á aðhaldi rík­is­fjár­mála þrjú ár í röð og að skuldir rík­is­ins lækki minna og hægar en áður stóð til. Afkomu­horfur hafi versnað og frum­jöfn­uður muni minnka.

Vegna skuld­bind­ing­anna sem frá­far­andi stjórn­ar­meiri­hluti sam­þykkti á Alþingi rétt fyrir kosn­ingar mun rík­is­sjóður einnig verða rek­inn með halla á árinu 2017 nema ný rík­is­stjórn grípi til auk­innar tekju­öfl­unar. „Sam­an­lögð kostn­að­ar­á­hrif af breyt­ingum á sam­göngu­á­ætlun og almanna­trygg­ingum nema rúm­lega 20 ma.kr. á ári eða tæp­lega 1% af lands­fram­leiðslu. Afkomu­horfur versna því frá fyrra mati Seðla­bank­ans sem birt var í Pen­inga­málum 2016/2 í maí sl. Óvíst er hvort gripið verði til sér­tækra tekju­öfl­un­ar­að­gerða til að fjár­magna þessar aðgerðir og er því gert ráð fyrir að halli verði á rekstri rík­is­sjóðs og hins opin­bera út spá­tím­ann,“ segir í Pen­inga­málum.

Þrátt fyrir þetta ýjar Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að því að tal um að staða rík­is­sjóðs sé þrengri en látið hafi verið í veðri vaka sé „ekk­ert annað en yfir­varp til að rétt­læta nýja og hærri skatta“. Hann birti eft­ir­far­andi stöðu­upp­færslu á Facebook í dag:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár