Einmanalegasta eyja í heimi

Vilji ferða­menn upp­lifa eitt­hvað sem fáir hafa séð er ráð að heim­sækja eyj­una Tristan da Cuhna í Suður-Atl­ants­hafi, sem ítrekað hefur verið við það að leggj­ast í eyði.

Einmanalegasta eyja í heimi
Eld­fjalla­eyjan Á eyj­unni búa svipað margir og á Tálkna­firði. Mynd: Wikipedia

Einn afskekkt­asti staður jarðar er eld­virki eyja­klas­inn Tristan da Cunha í Suður-Atl­ants­hafi, en eina byggða eyjan hefur stundum verið nefnd „ein­mana­leg­asta eyja í heimi“. Þar búa nú 268 manns í „höf­uð­borg­inni“ Edin­burgh of the Seven Seas, sem heima­menn nefna ein­fald­lega The Settlem­ent, eða „Nýlendan“.

Eyjarnar, sem þykja gríð­ar­lega fal­legar, eru nokkurn veg­inn miðja vegu á milli tveggja heims­álfa, 2.816 kíló­metrum frá Suður-Afríku og 3.360 kíló­metrum frá Suður-Ameríku. Skiptast þær í grófum dráttum í fjórar eyjar; þá sem höf­uð­borgin er á, Tristan da Cunha, Eyjuna óað­gengi­legu (Inaccessable Island), Næt­ur­ga­la­eyj­arnar (Night­ingale Islands) og hina litlu Gough-eyju.

Edinborg heimshafanna sjö
Edinborg heims­haf­anna sjö Nafnið var valið vegna heim­sóknar Alfreðs Breta­prins af Edinborg, árið 1867.

Fyrstu land­nem­arnir voru fjórir Banda­ríkja­menn sem komu árið 1810. Þrír þeirra lét­ust tveimur árum seinna, en sá fjórði hélt þó áfram búsetu á eyj­unni. Árið 1816 lýsti Breska kon­ungs­veldið yfir eign sinni á eyj­unni, en sagt er að ástæðan hafi verið að koma í veg fyrir að Frakkar gætu notað eyj­una sem bæki­stöð til þess að frelsa Napóleon sem var fangi á eyj­unni Sánkti Helenu, sem einnig er í sunn­an­verðu Atl­ants­hafi.

Næstu hund­rað ár fjölg­aði íbúum vegna umsvifa breska flot­ans, en eftir erf­iðan vetur árið 1906 og harð­indi ára­tug­ina á undan skip­aði rík­is­stjórnin íbúum að yfir­gefa eyj­una. Eyj­ar­skeggjar héldu þá íbúa­fund þar sem þeir neit­uðu að verða við skip­un­inni. Í kjöl­farið jókst mjög ein­angrun þeirra og á árunum 1909 til 1919 kom ekk­ert skip til eyj­anna, fyrr en breska her­skipið HMS Yarmouth kom til þess að segja íbúum frá því hvernig fyrri heims­styrj­öldin hafði farið.

Í októ­ber 1961 gaus svo eld­fjallið á Tristan da Cunha. Urðu þá allir íbúar að yfir­gefa eyj­una og voru þeir fluttir til Bret­lands. Hið kon­ung­lega breska vís­inda­fé­lag komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok goss að eyjan væri óbyggi­leg. Eftir að hafa dvalist í Englandi í 18 mán­uði efndu íbú­arnir þó til kosn­inga þar sem ákveðið var með 148 atkvæðum gegn 5 að snúa aftur til eyj­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár