Eggert Skúlason til liðs við Framsóknarflokkinn

„Ég er ekki fram­sókn­ar­maður,“ full­yrti Eggert Skúlason í sjón­varps­við­tali þegar hann tók við sem rit­stjóri DV. Hann hefur nú verið ráð­inn kosn­inga­stjóri Fram­sóknar í Reykja­vík.

Eggert Skúlason til liðs við Framsóknarflokkinn
Eggert Skúlason Mynd: Hringbraut.is

Eggert Skúlason, fyrr­ver­andi rit­stjóri DV, hefur verið ráð­inn kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Eggert greindi sjálfur frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær. „Með mjög stuttum aðdrag­anda hef ég tekið að mér stórt og spenn­andi verk­efni. Ég réði mig í dag sem kosn­inga­stjóra hjá Fram­sókn­ar­flokknum í báðum kjör­dæmum í Reykja­vík. Ég hef áður komið að kosn­inga­bar­áttu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk og Framsókn og einnig unnið með ein­stak­lingum í Sam­fylk­ing­unni. En þetta verður fjör og stuttur tími. Hlakka til að takast á við þetta verk­efni,“ segir Eggert meðal ann­ars. 

Ekki framsóknarmaður

Athygli vakti þegar Eggert var ráð­inn rit­stjóri DV í byrjun síð­asta árs eftir hörð átök um eign­ar­hald fjöl­mið­ils­ins. Hann hafði áður skrifað afar umdeilda skýrslu um vinnu­brögð rit­stjórn­ar­innar, skýrslu sem allir blaða­menn DV for­dæmdu. Þegar Eggert tók við sem rit­stjóri sagði hann að tekið yrði mið af skýrsl­unni í starfi rit­stjórn­ar­innar. „Stærsta breyt­ingin sem fólk mun sjá er að við munum taka mark af skýrsl­unni minni og inn­leiða orðið sann­girni.“ 

„Að ég sé fram­sókn­ar­maður?“

Ýmsir tengdu Eggert við framá­menn í Fram­sókn­ar­flokknum, en hann hafði áður starfað fyrir flokk­inn. „Að ég sé fram­sókn­ar­maður? Ég segi bara: Sig­mundur Davíð, ef það er rangt hjá mér, þá skalt þú bara koma og segja að ég sé að ljúga - en ég er ekki fram­sókn­ar­maður,“ sagði Eggert hins vegar í við­tali við RÚV.

„Kallinn er í Panamaskjölunum“

Þá vakti athygli þegar í ljós kom, fyrr á þessu ári, að nafn Eggerts er að finna í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu. Eggert tjáði sig sem fyrr um málið á Facebook-síðu sinni: „Jebb. það er opin­bert. Kallinn er í Panama­skjöl­unum. Sætti rann­sókn skatta­yf­ir­valda og því máli er lokið. Greiddi skatta og skyldur. Endilega hrauna yfir kall­inn. Koma svo, ekki láta sitt eftir liggja. Opið til klukkan 18 í dag,“ skrif­aði hann við til­efnið. 

Stundin hafði áður sagt frá því að Eggert hefði verið til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara á sama tíma og hann skrif­aði bók þar sem hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að rann­sóknir sér­staks sak­sókn­ara á efna­hags­brotum væru ofsóknir. Í kjöl­far fréttar Stund­ar­innar gaf Eggert frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu: „Í árs­byrjun 2011 hóf skatt­rann­sókn­ar­stjóri rann­sókn á skatt­skilum mínum frá árinu 2005. Ég hafði greitt mér arð úr félögum erlendis frá á árunum 2006 til 2008. Nam upp­hæðin sam­tals um sjö millj­ónum króna. Ég gerði grein fyrir þessum arð­greiðslum á skatt­fram­tali mínu og greiddi fjár­magnstekju­skatt af arð­greiðsl­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár