„Ég gat varla gengið”

Björn Zoëga Björns­son, fyrr­ver­andi skip­stjórn­ar­maður, var alltof þungur, með skaða á hné og áunna syk­ur­sýki. Hann fékk hjálp og gengur nú á hæstu fjöll sem Biggest Winner.

„Ég gat varla gengið”
Sig­ur­veg­ari Björn Zoëga á Fimm­vörðu­hálsi, einni af erf­ið­ari göngu­leiðumn á Íslandi, nokkrum mán­uðum eftir að hann gat varla gengið. Mynd: Einkasafn

„Ég var orð­inn alltof þungur og glímdi að auki við veik­indi í hné eftir slys á sjónum. Af þessu leiddi að ég átti erfitt með gang,” segir Björn Zoëga Björns­son, 50 ára fyrr­ver­andi skip­stjórn­ar­maður, sem þakkar nú sínum sæla fyrir að hafa snúið lífi sínu frá kyrr­setu í það að ganga á fjöll nokkrum sinnum í viku. 

Það sem varð Birni til bjargar var verk­efnið Biggest Winner sem stofnað var til á vegum Ferða­fé­lags Íslands í febr­úar á síð­asta ári. Mark­miðið var að gefa þungu fólki tæki­færi til að styrkja sig og létta með fjall­göngum. 40 manns tóku slag­inn. Þeirra á meðal var Björn. 

Hætti á sjónum

„Ég hafði þurft að hætta sjó­mennsku vegna slyss á hægra hné. Þetta hefur háð mér mjög und­an­farin ár. Þegar reyndi á hnéð þá bólgn­aði það upp og það tók mig langan tíma að verða góður. Núna  finn ég nán­ast ekki fyrir verkjum. Ég hef farið í sjö aðgerðir á hnénu. Brjóskið er nán­ast uppurið og ég er með slit­gigt. Til þess að bæta gráu ofan á svart var ég með syk­ur­sýki 2. Árið 2013 fékk ég „Unloader One“ hné­spelku frá Össuri sam­kvæmt ráð­legg­ingu heim­il­is­læknis míns. Ég hefði raunar þurft að fara í lið­skipti en var að mati Trygg­inga­stofn­unar of ungur,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár