EES-samningurinn útilokar ekki að sett verði lög um aflandsfélög

Ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra um jafn­ræð­is­reglu EES-samn­ings­ins stand­ast ekki skoðun. EES-samn­ing­ur­inn úti­lokar ekki að sett verði lög sem banna vistun eigna á lág­skatta­svæðum utan EES-svæð­is­ins.

 EES-samningurinn útilokar ekki að sett verði lög um aflandsfélög

Ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að vegna jafn­ræð­is­reglu EES-samn­ings­ins sé ekki hægt að banna Íslend­ingum að vista pen­inga í lág­skatta­ríkjum, stand­ast ekki skoðun. Þetta kemur fram í árétt­ingu frá Eft­ir­lits­stofnun EFTA. „Í umræðu um mögu­legar aðgerðir til að koma í veg fyrir að eignir séu vistaðar í skatta­skjólum hefur þess mis­skiln­ings gætt að slíkt stang­ist á við EES-samn­ing­inn. Af því til­efni vill Eft­ir­lits­stofnun EFTA árétta að EES-samn­ing­ur­inn úti­lokar ekki að sett verði lög sem banna vistun eigna á lág­skatta­svæðum utan EES-svæð­is­ins. Grunn­reglan um frjálsa fjár­magns­flutn­inga er sú að ekki séu tak­mark­anir á flutn­ingi fjár­magns milli ríkja sem eiga aðild að EES-samn­ingnum. Ákvæði EES-samn­ings­ins um frjálsa fjár­magns­flutn­inga gilda ekki um önnur ríki,“ segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar. 

Sigurður Ingi hélt því fram í við­tali við Morg­un­blaðið í gær að sitt fyrsta verk í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hafi verið að láta kanna hvort hægt væri að banna Íslend­ingum að vista pen­inga í lág­skatta­ríkjum. „Fyrstu svör sér­fræð­inga eru þau að vegna meðal ann­ars jafn­ræð­is­reglu EES-samn­ings­ins sé það ekki hægt. Mér hefur því þótt sér­kenni­legt að heyra Evr­ópu­sam­bands­sinna, Sam­fylk­ing­una og jafn­vel Pírata, sem hafa aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á stefnu­skrá, tala um að loka eigi á mögu­leika fólks að vista pen­ing­ana sína á aflandseyjum. Þetta er alþjóð­legt vanda­mál,“ sagði Sigurður Ingi meðal ann­ars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár