Dyravörður Húrra rekinn fyrir að klæmast við konur í Druslugöngupartýi

Dyra­vörður á skemmti­stað í mið­bænum bað konur í bið­röð um að fara í sleik til að kom­ast inn í boð í til­efni af Druslu­göng­unni. Hann hefur verið rek­inn.

Dyravörður Húrra rekinn fyrir að klæmast við konur í Druslugöngupartýi

„Húrra biðj­ast afsök­unar á ömur­legum dyra­verði sem var í partý­inu í gær og munu sjá til þess að hann verði aldrei aftur í dyr­unum hjá þeim,“ segir Facebook-síðu Druslu­göngu pepp partý sem haldið var í gær. Samkvæmt einum skipu­leggj­anda veisl­unnar var umræddur dyra­vörður með dóna­skap í garð kven­kyns gesta og krafð­ist þess af sumum þeirra sem voru í röð að þær færu í sleik hver við aðra til að kom­ast inn á stað­inn.

„Við vorum miður okkar þegar við heyrðum að hann væri að angra við­skipta­vini og létum strax vita, eig­andi Húrra tekur þessu mjög alvar­lega og vill aldrei sjá þetta ger­ast aftur. Við biðjum þá sem dyra­vörð­ur­inn angr­aði inni­lega afsök­unar,“ segir enn fremur á Facebook-síðu pepp partýs­ins.

 


 

Stundin ræddi við Helgu Lind Mar, einn skipu­leggj­anda partýs­ins í gær, og seg­ist hún hafa fengið sím­tal frá Jóni Mýrdal í morgun vegna dyra­varð­ar­ins. „Dyra­vörð­ur­inn var að klæm­ast í ein­hverjum stelpum í röð­inni, það var fjöru­tíu metra röð þarna fyrir utan. Hann var að segja stelpum að þær kæmust inn fyrr ef þær færu í sleik við hvor aðra. Við fengum sím­tal frá Húrra í morgun og Húrra baðst inni­lega afsök­unar og að sagði að þessi maður myndi aldrei aftur vera aftur ,“ segir og bætir við að við­brögð skemmti­stað­ar­ins hafi verið til fyr­ir­myndar. Druslu­ganga verður gengin næst­kom­andi laug­ar­dag.

Ekki náð­ist í Jón Mýrdal, eig­anda Húrra, við vinnslu frétt­ar­innar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár