Davíð Oddson varar við hættu og fer í forsetaframboð

Fer í sum­ar­leyfi frá Morg­un­blað­inu til að sinna fram­boð­inu. Varar við hættu framundan og veiku þingi um leið og hann seg­ist vera maður sem geti brugð­ist við.

Davíð Oddson varar við hættu og fer í forsetaframboð

Davíð Oddsson ætlar í for­seta­fram­boð. Þetta kom fram í Sprengisandi í morgun þar sem Davíð ræddi við við Pál Magn­ús­son.

Þar sagði Davíð að Ólafur Ragnar Grímsson hefði reynt á þan­þol þjóð­ar­innar sem vildi ekki sjá hann tapa kosn­ingum og hefði því stutt hann í síð­ustu kosn­ingum. Ólafur Ragnar hefði að mestu staðið sig vel í emb­ætti en nú hefði hann setið nógu lengi. Þá hafi hann gert mis­tök með því að ákveða að fjöl­miðla­lög­unum yrði vísað til þjóð­ar­inar. Það hafi verið hluti af þess­ari útrás­ar­tíð, sem hafi ekki verið besta tíma­bil Ólafs í emb­ætti.  

Sjálfur var Davíð Seðla­banka­stjóri þegar bank­arnir féllu og kom, líkt og Ólafur Ragnar, víða við sögu í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis, þar sem aðdrag­andi og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 voru krufnar. Áður hafði hann starfað í stjórn­málum um ára­bil, verið for­sæt­is­ráð­herra, borg­ar­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Sagðist hann ekki ganga að því vísu að hann fengi stuðn­ing hægri manna sem hefðu fram að þessu stutt Ólaf Ragnar, ekki væri hægt að ganga að neinum hópi kjós­enda vísum. Í for­seta­kosn­ingum væri svo margt skrýtið að það væri ekki hægt að ganga að neinu vísu. Vel gæti farið svo að þjóðin myndi á end­anum velja annan, en þá myndi hann una þeirri nið­ur­stöðu. „Ég held að ég myndi tapa vel,“ sagði Davíð sem mun þá halda sinni stöðu á Morg­un­blað­inu.

Hann væri sækj­ast eftir emb­ætti til að hann gæti verið á vakt­inni til að bregð­ast við. „Það verða að vera þarna menn sem geta brugð­ist við,“ sagði Davíð, menn sem létu engan hafa áhrif á sig. Það væru eig­in­leikar sem hann teldi sig hafa. Þá væri hann þekktur til að stilla til friðar með mönnum þótt hann sé ákveð­inn. Þá var­aði hann við hættum sem væru framundan og veikt þing, við þær aðstæður væri frá­leitt ef þjóðin myndi veika sér veikan for­seta. Ef svo færi væri þjóðin alveg úti að aka, en hann teldi að svo væri ekki. Um leið gaf hann til kynna að aðrir fram­bjóð­endur hefðu ekki sömu reynslu og festu og þeir Ólafur Ragnar. 

„Ef þú lítur á mig eins og fast­eign þá er ég ekki með neina falda galla.“

Davíð sagði jafn­framt að það hafi ekki endi­lega verið rétt nið­ur­staða að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son léti af störfum sem for­sæt­is­ráð­herra vegna frétta­flutn­ings af Wintris-mál­inu og Panama-skjöl­unum. For­set­inn og aðrir hefðu átt að stuðla að umræðu um málið, í stað þess að láta það þró­ast svona hratt vegna mót­mæla á Aust­ur­velli. Hér ætti að ríkja lýð­ræði en ekki þess konar ræði sem yrði ekki nefnt í þætt­inum. Það væri ekki vin­sælt að taka upp hansk­ann fyrir Sigmund Davíð en hann myndi engu að síður að gera það, þar sem Sig­mundur Davíð hefði gert margt gott í sínum störfum. Aðspurður sagð­ist hann hvorki hafa verið svo fjáður né búa yfir slíkri hug­mynda­auðgi að geyma fé í aflands­fé­lögum.

Nú er hann á leið í sum­ar­frí frá Morg­un­blað­inu, til að sinna kosn­inga­bar­átt­unni. Muni hann tapa kosn­inga­bar­átt­unni seg­ist hann vel geta haldið þar áfram að skrifa. 

Samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði dag­ana 26. apríl og 1. maí er Davíð með tveggja pró­senta fylgi, en þátt­tak­endur voru spurðir hvern þeir vildu sem for­seta ef þeir mættu nefna hvaða Íslend­ing sem er.

Í könnun Stund­ar­innar, sem fram­kvæmd var dag­ana 23. febr­úar til 1. mars, mæld­ist Davíð með 7-8% fylgi þegar spurt hvaða einn aðila aðspurðir myndu lík­leg­ast kjósa sem for­seta. Þá mældst Davíð með 23% fylgi á meðal stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár