Chelsea Manning fær frelsi

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur ákveðið að stytta dóm upp­ljóstr­ar­ans Chelsea Manning.

Chelsea Manning fær frelsi
Chelsea Manning Hefur verið í fang­elsi, og oft ein­angrun, frá því að upp komst að hún hefði lekið gögnum sem sýndu hvernig almennir borg­arar féllu vegna árása Banda­ríkj­anna. Mynd: United States Army

Banda­ríski upp­ljóstr­ar­inn Chelsea Manning verður frelsuð úr fang­elsi í maí eftir ákvörðun Baracks Obama Banda­ríkja­for­seta, nokkrum dögum áður en hann lætur af emb­ætti.

Þetta kom fram hjá New York Times rétt í þessu.

Manning var dæmd í 35 ára fang­elsi fyrir að leka gögnum um brot banda­ríska hers­ins gegn almennum borg­urum til upp­ljóstr­ar­a­síð­unnar Wikileaks árið 2010. Um var að ræða harð­asta dóm fyrir leka trún­að­ar­gagna í sögu Banda­ríkj­anna. Hún hefur afplánað sjö ár af dómnum og hefur verið inni­lokuð í ein­angrun. Rann­sókn­ar­mið­ill­inn. Manning hefur und­ir­geng­ist pynd­ingar í fang­els­is­vist sinni. Meðal ann­ars var hún dæmd til 14 daga ein­angr­un­ar­vistar síð­asta haust vegna hegð­unar sinnar í tengslum við sjálfs­vígstil­raun hennar. Hún reyndi að svipta sig lífi í annað skiptið í októ­ber í fyrra. 

Hér á síðu Wikileaks má sjá hluta af þeim upp­ljóstr­unum sem Chelsea Manning kom á fram­færi. Myndband sem sýnir árás sem kost­aði meðal ann­ars tvo frétta­menn lífið var sýnt í fréttum Sjón­varps­ins 5. apríl 2010, en Kristinn Hrafns­son, sem þá var frétta­maður RÚV, ferð­að­ist til Bagdad til að und­ir­búa birt­ing­una.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár